 |  | | 17.11.2009 | Áhugavert námskeið |  |  |
Sáttmáli Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks
Endurmenntunarstofnun stendur fyrir námskeiði í samstarfi við Námsbraut í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands laugardaginn 28. nóvember 2009 kl. 9:00 – 17:00 Dunhaga 7, 107 Reykjavík |
Dagskrá
09:00 Kynning á dagskrá námskeiðsins og fyrirkomulagi þess
09:15 Sáttmálinn, mannréttindi og mannréttindasáttmálar Guðrún D. Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands
10:00 Sáttmálinn, félagsleg réttindi, jafnrétti og lög gegn mismunun Brynhildur Flóvenz, dósent við Lagadeild HÍ
10:45 Umræður
11:00 Kaf f i
11:30 Nokkur mikilvæg atriði varðandi innihald og ákvæði Sáttmálans
Helga Baldvins- og Bjargardóttir, lögfræðingur og þroskaþjálfi
12:15 Umræður
12:30 Hádegishlé
13:30 Innleiðing Sáttmálans á Íslandi Óskar Páll Óskarsson, lögfræðingur í félags- og tryggingamálaráðuneytinu
14:15 Umræður
14:30 Kaf f i
15:00 Sáttmálinn og lagaleg þróun í ljósi fötlunarfræða
Rannveig Traustadóttir, prófessor í fötlunarfræði við HÍ
15:45 Hvaða máli skiptir Sáttmálinn fyrir fatlað fólk á Íslandi? Guðmundur Magnússon,formaður Öryrkjabandalags Íslands
16:15 Almennar umræður Umsjón: Rannveig Traustadóttir, prófessor í fötlunarfræði við HÍ.
Námskeiðið er ætlað öllum sem hafa áhuga á að kynna sér Sáttmálann og þýðingu hans fyrir fatlað fólk á Íslandi.
Fatlað fólk um allan heim hefur búið við skert mannréttindi, mismunun og fordóma. Sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks er ætlað að breyta þessu og tryggja mannréttindi alls fatlaðs fólks; barna, ungmenna og fullorðinna. Sáttmálinn, sem tók gildi þann 3. maí 2008, kveður sterkt á um að viðurkenna skuli jafnrétti, mannvirðingu, sjálfræði, sjálfstæði, aðgengi og þátttöku sem lykilatriði til að fatlað fólk njóti jafnréttis og fullra borgaralegra réttinda hvar í heiminum sem er.
Á námskeiðinu verður Sáttmálinn kynntur, innihald hans og tengsl við aðra löggjöf um mannréttindi og jafnrétti. Sáttmálinn verður einnig ræddur í samhengi við aðra mannréttindasáttmála, fjallað um innleiðingu hans á Íslandi og rætt um þýðingu hans fyrir fatlað fólk hér á landi.
Athugið við skráningu!
Skipuleggjendur námskeiðsins leggja áherslu á að það sé aðgengilegt fyrir alla og lagað að þörfum þátttakenda. Því biðjum við þig um að taka fram, í athugasemdareit við rafræna skráningu eða við skráningu í síma, ef eitthvað af neðangreindu á við um þig:
· Þarf táknmálstúlk
· Þarf námsgögn á stækkuðu letri eða blindraletri
· Þarf námsgögn á auðlesnum texta
· Kem með aðstoðarmann
· Nota hjólastól
· ... eða annað sem skiptir máli að skipuleggjendur viti af.
Námskeiðið verður sent um fjarfundabúnað á Fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar svo og á aðra staði sé þess óskað.
Umsjón: Rannveig Traustadóttir, prófessor í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands Tími: Lau. 28. nóv. kl. 9 - 17 Hvar: Endurmenntun HÍ, Dunhaga 7 Verð: 14.500 kr.
Nánari upplýsingar um námskeiðið og skráning hér eða í síma 525 4444
Mörg stéttarfélög styrkja félaga sína til náms. Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi?
|