Ánægjuleg frétt úr Morgunblaðinu 16. febrúar 2010.
Sérstakar sýningar fyrir heyrnarskerta/heyrnarlausa og þá sem skilja ekki íslensku verða á kvikmyndinni Bjarnfreðarson nú í febrúar. Verður myndin sýnd með íslenskum og enskum texta fyrir þessa tvo hópa sem hafa hingað til ekki getað notið hennar sem skyldi.
Sýning fyrir heyrnarskerta og heyrnarlausa verður 19. febrúar kl. 17:50 í Sambíóunum Kringlunni og sýning með enskum texta verður 22. febrúar kl. 17:50 í sama bíói. |