 |  | | 23.04.2010 | Aðalfundur 4. maí kl 20:00 |  |  |
Aðalfundur Heyrnarhjálpar
verður þriðjudaginn 4. maí kl. 20:00 á Langholtsvegi 111
Venjuleg aðalfundarstörf Önnur mál
Þema kvöldsins: Framtíðarskipan í málefnum heyrnarskertra.
Gestur fundarins verður Ragnheiður Bóasdóttir, sem er formaður í fram-kvæmdanefnd í málefnum heyrnarlausra og heyrnarskertra. Hún mun fjalla um verkefni og markmið nefndarinnar. Eftir erindi hennar verða umræður.
Tónmöskvi – Rittúlkur - Kaffitár
Mætið öll og takið þátt í umræðu um stefnumarkandi mál fyrir heyrnarskerta. |
Ágætu félagsmenn.
Ný nefnd er starfandi sem fjallar um okkar mál til framtíðar!
Enginn fulltrúi frá heyrnarskertum var skipaður í nefndina!!
Nefndin er skipuð af mennta- og menningarmálaráðherra og ber hún nafnið „Framkvæmdanefnd í málefnum heyrnarlausra og heyrnarskertra“ . Hlutverk hennar er að ræða framtíðaráform um þjónustu við heyrnarlausa og heyrnarskerta. Nefndinni er ætlað að skoða stöðuna eins og hún er, greina fyrirliggjandi gögn og koma með tillögur að framtíðarfyrirkomulagi um samhæfða þjónustu við heyrnarlausa og heyrnarskerta einstaklinga í landinu og leggja til nauðsynlegar lagabreytingar.
Nefndin var upphaflega skipuð fulltrúum mennta-og menningarmálaráðuneytis, félags- og tryggingamálaráðuneytis, heilbrigðisráðuneytis, Sambands íslenskra sveitafélaga, Reykjavíkurborgar og Félags heyrnalausra.
Þegar við fréttum fyrir tilviljun af skipun nefndarinnar var okkur að sjálfsögðu brugðið og höfðum strax samband við þau ráðuneyti sem koma að málum og höfum í framhaldi af því setið fundi með menntamálaráðherra og félagsmálaráðherra auk bréfaskrifa og símtala við ýmsa embættis- og ráðamenn.
Það er ljóst að við fyrir hönd heyrnarskertra sættum okkur ekki við að mál heyrnarskertra séu rædd í opinberri nefnd án þess að við komum þar að. Við höfum átt góða fundi og málefnalega í báðum ráðuneytunum. Okkur var strax tryggð þátttaka í heils dags vinnufundi undir stjórn formanns nefndarinnar og vilyrði kom frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu um aðkomu að nefndinni. Frá okkur hafa farið ýmis gögn og upplýsingar um þær áherslur sem við teljum mikilvægar fyrir heyrnarskerta, en allt er undir sem tengist aðgengi og þjónustu, ma. textun á sjónvarpsefni, rittúlkun og niðurgreiðslur á heyrnartækjum. Við getum verið mjög sátt við þær viðhorfsbreytingar sem orðið hafa og áður nefndur vinnufundur skilaði öllum helstu áherslum okkar inn í áframhaldandi úrvinnslu.
Nú gefst okkur tækifæri á því að hitta formann nefndarinnar, heyra nánar um hlutverk nefndarinnar, sýna „bakland“ Heyrnarhjálpar og láta í okkur heyra.
Við hvetjum ykkur til að mæta vel á fundinn n.k. þriðjudag kl. 20:00
og taka þátt í þessari mikilvægu umræðu!!
Besta kveðja,
Stjórn og starfsfólk Heyrnarhjálpar
Í lögum félagsins segir um boðun og dagskrá aðalfundar
4. grein
Aðalfundur félagsins skal haldinn fyrir lok maímánaðar ár hvert. Til hans skal boðað með minnst 8 daga og mest 20 daga fyrirvara með auglýsingum í fréttamiðlum eða bréfleiðis með sannanlegum hætti.
Dagskrá aðalfundar skal vera eftirfarandi:
1. Kosning fundarstjóra og ritara.
2. Skýrsla stjórnar.
3. Reikningar liðins starfsárs lagðir fram og kynntir.
4. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga.
5. Reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar eða synjunar.
6. Lögð fram tillaga um félagsgjald fyrir komandi starfsár.
7. Kosning formanns.
8. Kosning annarra stjórnarmanna.
9. Kosning varastjórnar.
10. Kosning skoðunarmanna reikninga.
11. Önnur mál.
|