
| Síður | | :: :: :: :: :: :: :: :: ::
|
| |
 |  | | 20.05.2010 | Fyrirhuguðum niðurskurði mótmælt harðlega |  |  |
| Aðalstjórnarfundur Öryrkjabandalags Íslands samþykkti samhljóða harðorða ályktun um tillögur félags- og tryggingamálaráðherra um niðurskurð í félagslega kerfinu. |
Ályktun aðalstjórnar ÖBI þriðjudaginn 18. maí 2010.
Aðalstjórn Öryrkjabandalags Íslands mótmælir harðlega að enn á ný skuli þessi ríkisstjórn sem kennir sig við „velferð” ráðast að félagslega kerfinu með því offorsi sem félags- og tryggingamálaráðherra boðaði síðastliðinn föstudag 14. maí. Kominn er tími til að leggja af verðmætamat frjálshyggjunnar.
Allt frá janúar 2009 hafa lífeyrisþegar orðið að bera hlutfallslega mestar byrðar vegna bankahrunsins, þar sem óprúttnir fjárglæframenn mökuðu krókinn á kostnað skattborgaranna. Allt síðastliðið ár dundu skerðingar á örorku- og ellilífeyrisþegum í formi skerðinga á lífeyri eða auknum lyfjakostnaði og hækkun komugjalda.
Það er skýlaus krafa Öryrkjabandalags Íslands að ríkisstjórnin láti af þeirri aðför sem hún hefur stundað gegn lífeyrisþegum og láglaunafólki, en fari að forgangsraða að nýju með félagsleg gildi í fyrirrúmi.
| | 
| Hafðu samband! | | Ef þú hefur einhverjar spurningar eða ábendingar sendu okkur póst með því að smella hér |
| Hvað er aðgengi fyrir heyrnarskert fólk? | | Aðgengi heyrnarskerts táknar að honum sé gert kleyft að skilja það sem fram fer í umhverfinu.
>> Lesa meira
|
| Eldra efni | | :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: ::
|
|