
| Síður | | :: :: :: :: :: :: :: :: ::
|
| |
 |  | | 21.05.2010 | Opinn framboðfundur Öryrkjabandalags Íslands |  |  |
ÖBÍ mun halda opinn framboðsfund næstkomandi þriðjudag þann 25. maí frá kl.16:00 til 19:00 í sal A á Hótel Hilton Nordica, Suðurlandsbraut 2.
Táknmálstúlkar verða á staðnum og tónmöskvakerfi.
Heyrnarhjálp hvetur þá sem eiga auðveldara með að nota rittúlk að snúa sér til skrifstofu ÖBÍ netfang: obi@obi.is eða síma 530 6700 og óska eftir rittúlkun. |
Þar munu frambjóðendur, eða fulltrúar þeirra, til sveitastjórna á höfuðborgarsvæðinu verða spurðir áleitinna spurninga um fyrirhugaða yfirfærslu á málefnum fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga um næstu áramót.
Á fundinum verða valdar spurningar lagðar fyrir nokkra af frambjóðendum af höfuðborgarsvæðinu. Spurningarnar eru runnar undan rifjum aðildarfélaga ÖBÍ og endurspegla hugmyndir og áhyggjur félaganna af fyrirhugaðri yfirfærslu.
Þetta er mikilvægt mál fyrir alla, ekki einungis þá sem búa við fötlun í dag því við vitum jú aldrei hvað morgundagurinn ber í skauti sér. Því eru málefni fatlaðra málefni allra. Þetta er mikilvægur málaflokkur sem vegur þungt í atkvæðum fólks með fötlun.
Fundarstjóri: Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands.
Mætum öll! Ekkert um okkur án okkar!
Öryrkjabandalag Íslands
| | 
| Hafðu samband! | | Ef þú hefur einhverjar spurningar eða ábendingar sendu okkur póst með því að smella hér |
| Hvað er aðgengi fyrir heyrnarskert fólk? | | Aðgengi heyrnarskerts táknar að honum sé gert kleyft að skilja það sem fram fer í umhverfinu.
>> Lesa meira
|
| Eldra efni | | :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: ::
|
|