
| Síður | | :: :: :: :: :: :: :: :: ::
|
| |
 |  | | 08.06.2010 | Kvikmyndasýning í tilefni Evrópuárs gegn fátækt og félagslegri einangrun |  |  |
Í tilefni Evrópuárs gegn fátækt og félagslegri einangrun hefur stýrihópur Evrópuársins í samstarfi við Vesturport ákveðið að sýna myndina Börn eftir Ragnar Bragason í Iðnó þann 10. júní.
Húsið opnar kl. 19.30 og hefst dagskrá kl. 20.00. Aðgangur er ókeypis og er sýningin öllum opin.
|
Í myndinni er fjallað um nokkra einstaklinga sem allir glíma við tilvistarvanda. Karítas, einstæð móðir fjögurra barna, á erfitt með að láta enda ná saman og er á barmi örvæntingar. Guðmundur elsti sonur hennar hefur orðið fyrir einelti í skóla og er vinafár. Maríno, nágranni Karítasar, er misþroska geðklofasjúklingur sem býr hjá móður sinni. Hann hættir að taka geðlyfin sín þegar hann kemst að því að mamma hans fer á bak við hann með því að hitta ókunnan mann á laun. Myndin hefur hlotið afburðadóma.
Nína Dögg Filiuppsdóttir, leikkona, mun flytja erindi fyrir myndina og einnig verða flutt erindi af einstaklingum sem af eigin raun hafa upplifað fátækt eða félagslega einangrun.
| | 
| Hafðu samband! | | Ef þú hefur einhverjar spurningar eða ábendingar sendu okkur póst með því að smella hér |
| Hvað er aðgengi fyrir heyrnarskert fólk? | | Aðgengi heyrnarskerts táknar að honum sé gert kleyft að skilja það sem fram fer í umhverfinu.
>> Lesa meira
|
| Eldra efni | | :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: ::
|
|