![]() | ![]() |
|
Vinnuhópur hefur tekið til starfa, sem vinna skal að því að textun á íslensku efni íslensku sjónvarpstöðvanna verði aukið. Í hópnum sitja fulltrúar frá Heyrnarhjálp, Félagi heyrnarlausra, Landssambandi eldri borgara, Foreldra- og styrktarfélagi heyrnardaufra barna og Alþjóðahúsi. Hví textun: Sjáðu hér að neðan >> Lesa meira [30.10.2008 23:05 - Sigurjón Einarsson]
Efni tekið af bloggsíðu formanns Heyrnarhjálpar Höllu B. Þorkelsson. Á ögurstundum og grafalvarlegum tíma er heyrnarskertu fólki haldið frá fréttum með textaleysiÞví miður þá var ávarp forsetisráðherra ekki textað fyrir þann hóp fólks sem glímir við heyrnarskerðingu og af því hef ég þungar áhyggjur. Það að geta ekki fengið upplýsingarnar rétt eins og aðrir á jafn alvarlegum tíma er skelfilegt. Ég biðla til allra sem eiga, þekkja eða kannast við einstaklinga sem eru heyrnarskertir ogkunna ekki táknmál og setja sig í samband við þá og útskýra hvað hefur átt sér stað, til hvaða ráða ríkisstjórnir ætlar að grípa og upplýsa eins og kostur er hver staða mála sé. Ég fagna því jafnframt að útsendingin frá Alþingi íslendinga var ein táknmálstúlkuð það er í fyrsta skipti svo ég viti til að slíkt sé gert í beinni útsendingu. Þegar jarðskjáftarnir dundu yfir árið 2000 og á liðnu sumri voru aldrei textaðar fréttir þrátt fyrir að vá hafi borið að höndum.!!!!!! Nóg er erfitt er fyrir einstaklinga að glíma við heyrnarskerðingu sem oftars er hlutskipti aldraðra og þá einangun sem því fylgir hvað þá þegar hörmungar og hættutímar bera af höndum og þá er mjög slæmt að vera afskiptur hópur og líður fyrir í einangrun sinni. Heyrnarskertir eru ekki fámennur né einsleitur hópur, talið er að allt að 16-18 % þjóðarinnar falli undir þá skilgreiningu. Vinsamlegast sendu þessi skilaboð áfram og jafnframt áskorun til fréttastofu RÚV að senda út textaðar fréttir á þessum óvissutímum og bæta þar úr ófullnægjandi aðgengi heyrnarlausra og heyrnarskertra. Með samstöðukveðjum, Halla B. Þorkelsson
Ný netföng!
Frá í dag hefur Heyrnarhjálp tekið í notkun tvö ný netföng.
Annars vegar er um að ræða nýtt netfang fyrir almennan netpóst til félagsins og er það heyrnarhjalp@heyrnarhjalp.is og hinsvegar netfang fyrir Málfríði Gunnarsdóttur framkvæmdastjóra félagsins og er netfang Fríðu mg@heyrnarhjalp.is. Fram að áramótum mun netfangið heyrnarhjalp@centrum.is vera virkt, en við hvetjum ykkur til að aðlaga ykkur að nýjum netföngum. >> Lesa meira
Heitið á Heyrnarhjálp!! Við erum eitt þeirra félaga sem þátt taka í Reykjavíkurmaraþoni Glitnis laugardaginn 23. ágúst. Við hvetjum okkar félagsmenn og velunnara að hlaupa til góðs fyrir heyrnarskertra og hvetja aðra til að gera það. Áheitunum verjum við í baráttumálin, en sárlega vantar tónmöskva í opinberar byggingar og texta á íslenskar kvikmyndir og íslenskt efni í sjónvarpi. Við fögnuðum 70 ára afmæli félagsins á síðasta starfsári meðal annars með því að flytja í nýtt og gott húsnæði. Verið velkomin á Langholtsveg 111, en það er opið hjá okkur á þriðjud.-til föstud. kl. 11-14, en auk þess er hægt að panta viðtalstíma á öðrum tímum. Látið gott af ykkur leiða og hlaupið til góðs fyrir heyrnarskerta!!
Sumarlokun. Það er lokað hjá okkur núna vegna sumarleyfa. Opnum aftur þriðjudaginn 5. ágúst. Gleðilegt sumar....Heyrnarhjálp Síða: Til baka 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 Næst |
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Langholtsvegi 111 - 104 Reykjavík - Sími: 551 5895 - Fax: 551 5835 - Kt.: 600169-5489 - Netfang: heyrnarhjalp@heyrnarhjalp.is - Opið þriðjudag til föstudag kl 11:00 til 14:00, lokað mánudaga |