![]() | ![]() |
|
Heimasíða félagsins hefur því miður legið niðri um tíma vegna tæknilegra vandamála. Fréttapistill sá er hér fer á eftir kemur því seinna en ætlað var og biðjumst við velvirðingar á því. Norræn ráðstefna um lífsgæði heyrnarskertra 4.-7. júní n.k. Nordica Hótel, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík. Við eigum því láni að fagna að fagfólk í heyrnarfræðum mun fjölmenna til Íslands fyrstu vikuna í júní. Erindið er að ræða lífsgæði þeirra sem við heyrnarskerðingu búa út frá ýmsum sjónarhornum. Dagskráin er fjölbreytt og eru fyrirlesarar þekktir fræðimenn víða að og einnig heyrast raddir neytenda á þessari glæsilegu ráðstefnu. Heyrnarhjálp mun eiga sína fulltrúa á ráðstefnunni og munum við leggja okkur fram um að koma á framfæri því markverðasta sem þarna verður fjallað um. >> Lesa meira
Á næsta aðalfundi Heyrnarhjálpar verður lögð fram tillaga að breytingum á lögum félagsins. Hér má skoða tillögu stjórnar að lögum Heyrnarhjálpar: Tillaga að lögum Heyrnarhjálpar
Ágætu félagsmenn: Þá er komið að aðalfundinum. Hann verður í húsnæði okkar á Langholtsvegi 111, miðvikurdaginn 28. maí 2008. Fundurinn hefst klukkan 20.00 Dagskrá fundarins: # Venjuleg aðalfundarstörf. # Lagabreytingar. # Önnur mál. Gestur fundarins verður Helga Vala Helgadóttir og ræðir hún um sjáfsstyrkingu og félagsþátttöku. Við hvetjum félagsmenn til að mæta vel á fundinn, en að venju sjáum við um að aðgengið sé í lagi og bjóðum upp á kaffi í fundarlok. Stjórnin
Texti er okkar tromp, ….málþing um aðgengi fólks með heyrnarfötlun. Heyrnarhjálp býður til málþings á Grand Hóteli við Sigtún 3. mars n.k. Málþingið fjallar um aðgengismál heyrnarskertra/lausra í víðum skilningi og er ætlað þeim hópi, aðstandendum þeirra og ekki síður fagfólki og embættismönnum sem tengjast málflokknum í starfi. Fjöllum m.a. um: #Textun íslensks efnis í sjónvarpi, myndböndum og kvikmyndum. # Rittúlkun, táknmálstúlkun og réttur einstaklinga til túlkunar. #Tónmöskvi, hvað gerir hann og hvar á hann að vera. #Vinnumarkaðurinn og heyrnarskertir. Stuðningur af tæknibúnaði. #Aðgengi að skólakefinu. #Kynning á nýrri tækni og hjálpartækjum til að létta daglegt líf og störf. Við hvetjum alla er málið varðar að taka þátt í þessu málþingi og vonumst til að fólk utan höfuðborgarsvæðisins sjái sér einnig fært að koma, en málþingið er haldið á mánudags síðdegi. Aðgengi fyrir alla: Grand Hótel við Sigtún 1. hæð. Tónmöskvi, rittúlkur, táknmálstúlkur. Kaffiveitingar - námskeiðsgögn. Tími: 3/3 2008 kl. 16-19.30. Húsið opnar kl. 15.30. Verð, 1000 krónur. Fólk er hvatt til að skrá sig á netinu: heyrnarhjalp@centrum.is
Á afmælisdaginn sóttu margir góðir gestir félagið heim, þar á meðal borgarstjórinn í Reykjavík, sem sést hér að ofan gæða sér á afmælisterunni ásamt formanni félagsins, Höllu B. Þorkelsson og fyrrverandi formanni, Guðjóni I. Stefánssyni. Borgarstjóri ætlar að beita sér fyrir því að tónmöskvi verði settur í Ráðhús Reykjavíkur.
Í borgarstjórn Reykjavíkur var samþykkt í gær, 29. nóvember, að setja tónmöskva í fundarsal borgarstjórnar og í fréttatilkynningu sem send var út frá borgarstjórn voru aðrir opinberir aðilar hvattir til að gera hið sama. Sjá má fréttatilkynninguna á visi.is hér. Síða: Til baka 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 Næst |
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Langholtsvegi 111 - 104 Reykjavík - Sími: 551 5895 - Fax: 551 5835 - Kt.: 600169-5489 - Netfang: heyrnarhjalp@heyrnarhjalp.is - Opið þriðjudag til föstudag kl 11:00 til 14:00, lokað mánudaga |