Síður
 :: Forsíða
 :: Um Heyrnarhjálp
 :: Fréttabréf
 :: Heyrnartæki
 :: Tinnitus og Ménières
 :: Heyrnarskerðing
 :: Textunarmál
 :: Umræður
 :: Tenglar

 Leita á síðunni
  

  

 HEYRNARHJÁLP Í 70 ÁR !

AFMÆLISRIT  HEYRNARHJÁLPAR  KOMIР ÚT.

Heyrnarhjálp stendur nú á merkum tímamótum.  Liðin eru 70 ár frá stofnun félagsins n.k. miðvikudag, 14. nóvember. Afmælisins er  minnst á ýmsa vegu á árinu,  en vissulega verður til fjölbreytt saga á heilum sjö áratugum og að henni koma margir einstaklingar.

 

Afmælisrit félagsins, er gefið út í rúmlega 58 þúsund eintökum og því dreift um allt land með Morgun-blaðinu. Auk þess fá allir félagsmenn eintak sent í pósti næstu daga.  Ritið er fjölbreytt og efnismikið. Þar segjum við brot af sögunni, kynnum menn, málefni og ýmsa þjónustu  sem heyrnarskertir fá eða þurfa á að halda.

 

Á afmælisárinu fluttum við á Langholtsveg 111, en þar er bæði bjart og vítt til veggja.  Aðgengi er gott og bílastæði næg. Við verðum með “OPIÐ HÚS” á afmælisdaginn milli kl. 16 og 19. Allir eru velkomnir, félagsmenn, velunnarar, samherjar  og áhugafólk og vonum við að sem flestir sjái sér fært að koma.  Við höfum staðið að fræðslufundi um Méiére´s sjúkdóminn og stefnum á málþing í febrúar n.k.  Markmið okkar er einnig að ná því að heimsækja landsbyggðina með hækkandi sól.

 

Til hamingju með merkan áfanga í sögu Heyrnarhjálpar!

 

Velkomin á OPIÐ HÚS !                                                             Stjórn og starfsfólk Heyrnarhjálpar

 Maraþon til góðs fyrir Heyrnarhjálp.

Heyrnarhjálp er eitt þeirra félaga sem eru á lista Glitnis í Reykjavíkur-maraþoni laugardaginn, 18. ágúst n.k. Við hvetjum alla sem taka vilja þátt í hlaupinu að styrkja gott málefni, okkar málefni og heita á Heyrnarhjálp á laugardaginn.  Þið finnið okkur í H-unum á lista yfir félög sem hægt er að styrkja (ekki undir Félagið Heyrnarhjálp).

 

Skrifstofa Heyrnarhjálpar á Langholtsvegi 111, 104 Reykjavík er nú opnuð aftur eftir sumarlokun.  Við hvetjum alla til að líta við og skoða nýja húsnæðið. Hér er gott aðgengi fyrir alla og næg bílastæði. 

 

Þann 14. nóvember n.k. höfum við þjónað heyrnarskertum í 70 ár samfleytt. Á skrifstofunni bjóðum við upp á  rafhlöður í heyrnartæki á lágmarksverði, síur og snúrur.  Aðstoðum við þrif á tækjum og búnaði. Veitum upplýsingar um tæki og búnað og hingað getur fólk leitað með flestar spurningar er lúta að heyrnarfötluninni og hjálpartækjum.

 

Skrifstofan er opin þriðjud.-föstud. kl. 11:00 til 14:00.   Auk þess getur fólk pantað viðtalstíma í símum 89 89 636, 551 58 95 eða á netfanginu: heyrnarhjalp@centrum.is

 

 SUMARLOKUN

Sumarlokun

 

 

 

Skrifstofa Heyrnarhjálpar er lokuð vegna sumarleyfa frá mánudeginum

9. júli n.k.

 

Við opnum aftur þriðjudaginn 7. ágúst.

 

 

Við bendum á að rafhlöður Heyrnarhjálpar fást í flestum apótekum á höfuðborgarsvæðinu og víða úti um land.

 

Gleðilegt sumar!!

 

Félagið Heyrnarhjálp.

 Fyrirlestur um Méniéres

Méniéres.

Félagið Heyrnarhjálp og Heyrnar- og talmeinastöð bjóða til opins fyrirlestrar um Méniéres sjúkdóminn. Einkenni has eru kröftug svimaköst og þeim fylgja eyrnasuð, heyrnarskerðing og oft hljóðbrenglun. Fyrsta kastið kemur eins og þruma úr heiðskíru lofti.  Yfir sjúklinginn steypist allt í einu mikill svimi, sjúklingurinn missir jafnvægið og allt hringsnýst.  Þessu fylgir ógleði, oft uppköst, suð fyrir eyrum, heyrn dofnar og viðkvæmni eykst fyrir sterkum hljóðum.  Sjúkdómurinn er þó mjög einstaklingsbundinn. Þetta er sjaldgæfur sjúkdómur og leggst sjaldan á bæði eyrun.

Fyrirlesturinn heldur Jonas Brännström, heyrnarfræðingur sem vinnur nú að doktorsverkefni um Méniéres sjúkdóminn við háskólann í Lundi.  Hann mun einnig svara fyrirspurnum að fyrirlestri loknum.

Fyrirlesturinn verður haldinn miðvikudaginn 27. júní nk. í Valhöll, Háaleitisbraut 1 og hefst hann kl. 17:00. Fyrirlestuirnn verður á ensku. Tónmöskvi og Kaffiveitingar

Allir velkomnir og við hvetjum sérstaklega sjúklinga, aðstandendur þeirra og aðra áhugamenn til að nota þetta frábæra tækifæri til að fræðast um sjúkdóminn og það nýjasta sem um hann er vitað.

 

Síða: Til baka 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 Næst
 
 Hafðu samband!

Ef þú hefur einhverjar spurningar eða ábendingar sendu okkur póst með því að smella hér


 Hvað er aðgengi fyrir heyrnarskert fólk?

Aðgengi heyrnarskerts táknar að honum sé gert kleyft að skilja það sem fram fer í umhverfinu.


>>  Lesa meira

 Eldra efni
 :: 05.072010. | Gistisamningur milli Fosshótela og Öryrkjabandalags Íslands.  
 :: 02.07.2010 | Ný samþykkt lög frá Alþingi 
 :: 18.06.2010 | Sumarlokun 
 :: 08.06.2010 | Kvikmyndasýning í tilefni Evrópuárs gegn fátækt og félagslegri einangrun 
 :: 03.06.2010 | Kynningarfundur um stofnun samvinnufyrirtækis 
 :: 02.06.2010 | Morgunverðarfundur um fátækt. 
 :: 21.05.2010 | Opinn framboðfundur Öryrkjabandalags Íslands 
 :: 20.05.2010 | Ályktun um nýtt örorku- og starfshæfnismat 
 :: 20.05.2010 | Fyrirhuguðum niðurskurði mótmælt harðlega 
 :: 19.05.2010 | Lækkuð greiðslubyrði - Afskriftir lána - Bætt réttarstaða lántakenda 
 :: 23.04.2010 | Aðalfundur 4. maí kl 20:00 
 :: 24.03.2010 | Útgáfu afsláttarkortsins á plastformi hefur verið hætt. 
 :: 05.03.2010 | Opið hús í Síðumúla 6, n.k. mánudag, 8. mars  
 :: 20.02.2010 | Námskeið framundan hjá Hringsjá 
 :: 16.02.2010 | Bjarnfreðarson fyrir heyrnarskerta og enskumælandi 
 :: 05.02.2010 | Halaleikhópurinn kynnir: 
 :: 31.01.2010 | Áhugavert af heimasíðu ÖBÍ 
 :: 25.12.2009 | Verndum heyrnina - sýnum varúð!! 
 :: 21.12.2009 | Jólakveðja 
 :: 18.11.2009 | „Opið hús“ fellur niður 

Langholtsvegi 111 - 104 Reykjavík - Sími: 551 5895 - Fax: 551 5835 - Kt.: 600169-5489 - Netfang: heyrnarhjalp@heyrnarhjalp.is - Opið þriðjudag til föstudag kl 11:00 til 14:00, lokað mánudaga