Síður
 :: Forsíða
 :: Um Heyrnarhjálp
 :: Fréttabréf
 :: Heyrnartæki
 :: Tinnitus og Ménières
 :: Heyrnarskerðing
 :: Textunarmál
 :: Umræður
 :: Tenglar

 Leita á síðunni
  

  

 Áhugavert námskeið fyrir heyrnarskerta, aðstandendur og starfsfólk !!

Áhugavert námskeið !!

 

Heyrnar- og talmeinastöðin stendur fyrir námskeiði á

Grand Hóteli, Reykjavík við  Sigtún

þriðjudaginn 17. apríl n.k.

kl. 12:30 til 16:00

 

Dagskrá:

#  Fyrirlestur um heyrn og heyrnarskerðingu.

#  Lög og reglugerðir.

Hvað er niðurgreitt og hversu oft?

#  Heyrnartæki.

Mismunandi tegundir kynntar.

Hvað þarf að stilla og af hverju?

#  Önnur hjálpartæki fyrir heyrnarskerta.

#  Umhirða og viðhald heyrnartækja.

#  Sýnikennsla í minni hópum um

    umhirðu og viðhald heyrnartækja.

 

Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem vinna með heyrnarskertum

einstaklingum  svo og  heyrnarskertum og  aðstandendum þeirra.

 

Tónmöskvi verður í salnum.  Kaffiveitingar.

 

Þátttökugjald er kr. 3500.  Skráning fer fram á hti@hti.is og í

Síma 581 38 55.

 

 HEYRNARHJÁLP FLYTUR !!

Heyrnarhjálp  flytur

Félagið Heyrnarhjálp flytur í nýtt húsnæði

miðvikudaginn 14. mars n.k.

 

Nýja húsnæðið er að

Langholtsvegi 111. (Fóstbræðrahúsið)

Við verðum á  fyrstu hæð þar sem nú er Rúmkó, verslun með rúm og sængurfatnað.

 

Lokað verður 14. og 15. mars og opnað aftur á Langholtsvegi föstudaginn 16. mars n.k.

 

Verið velkomin í Heyrnarhjálp, Langholtsvegi

 

Gott aðgengi og næg bílastæði

 

 Styrkur til kaupa á samskiptatæki

 

Heyrnar- og talmeinastöð veitir styrk til kaupa á samskiptahjálpartækjum fyrir alvarlega heyrnarskerta og daufblinda sem hér segir:

1.      Fyrir þá sem eru eldri en átta ára og hafa tónmeðalgildi > 70 dB og / eða   talgreiningu  undir 30% greiðast kr. 30.000. Þó aldrei hærri fjárhæð en sem nemur kaupverði tækis.

2.      Fyrir þá sem eru eldri en átta ára og hafa verið greindir daufblindir greiðast kr. 45.000. Þó aldrei hærri fjárhæð en sem nemur kaupverði tækis.

Einstaklingur getur mest notið greiðsluþátttöku fyrir hvert samskiptahjálpartæki skv. 1. og 2. tölul. 1. mgr. á tveggja ára fresti.


Samskiptatæki eru eftirfarandi tæki: Tölvuforrit fyrir textasíma, tölva, myndsími, lófatölva, ritþjálfi, GSm sími, GSM tónmöskvi, faxtæki, conversor, skynjarabúnaður, vefmyndavél ofan á tölvu.
Styrkurinn verður aðeins greiddur út gegn framvísun á kvittun fyrir kaupum á einhverju af ofangreindum tækjum.

 
umsóknareyðublað má fá hjá Heyrnar- og talmeinastöð Íslands. Félaginu Heyrnarhjálp, Félagi heyrnarlausra og Blindrafélagi Íslands.

 

 Texti á íslenskri kvikmynd !!

Kvikmyndin "Börn"  verður sýnd með íslenskum texta í Háskólabíói  dagana 17. 18. og 19. nóvember. 

Sýningar verða bæði klukkan 18.00 og 20.00

Einnig er gert ráð fyrir sýningu með texta í Sambíóinu á Akureyri þessa sömu helgi.

Þessi mynd var frumsýnd fyrir nokkru í Háskólabíói og hefur myndin hlotið frábæra dóma. 

" Íslenskt meistaraverk....Mynd sem allir ættu að sjá......BÖRN er ein besta íslenska mynd sem fram hefur komið"  Ó.H.T/Rás 2

 

 Ráðherra með skerta heyrn.

Nýr menningarmálaráðherra Svíþjóðar, Lena Adelsohn Liljeroth, hefur heyrt illa frá barnsaldri.  Vissulega háir heyrnarskerðing á margan hátt, en það er líka mikilvægt að sýna fram á , að til eru hjálpartæki sem vega að mestu upp á móti fötluninni. Það var vissulega hvatning að vera valin í þetta mikilvæga embætti og niðurstaða mín varð sú að mæta áskoruninni, segir hinn nýi ráðherra menningarmála í Svíþjóð.  Lena Adelsohn Liljeroth talar opinskátt um heyrnarskerðinguna og segir að heyrnarskerðing sín sé það mikil að hún hafi til dæmis aldrei heyrt fuglasöng, hún eigi erfitt með að staðsetja hljóð og að tungumál séu henni erfið.

                                                                                     

Að mæta þörfum heyrnaskertra er hvorki mjög flókið eða kostnaðarsamt.  Hún leggur áherslu á að texta beri allt sjónvarpsefni og að tónmöskvi eigi að vera í öllum byggingum sem ætlaðar eru til almenningsnota, þar undir falla leikhús og önnur menningarleg starfsemi.

 

Samtök heyrnarskertra á Norðurlöndum fagna skipun ráðherrans og óska henni til hamingju með ábyrgðarmikið starf.  Lena Adelsohn Liljeroth  er góð fyrirmynd fyrir heyrnarskert börn og unglinga sem allt of oft líða fyrir fötlun sína og hugsunarleysi annarra.

Síða: Til baka 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 Næst
 
 Hafðu samband!

Ef þú hefur einhverjar spurningar eða ábendingar sendu okkur póst með því að smella hér


 Hvað er aðgengi fyrir heyrnarskert fólk?

Aðgengi heyrnarskerts táknar að honum sé gert kleyft að skilja það sem fram fer í umhverfinu.


>>  Lesa meira

 Eldra efni
 :: 05.072010. | Gistisamningur milli Fosshótela og Öryrkjabandalags Íslands.  
 :: 02.07.2010 | Ný samþykkt lög frá Alþingi 
 :: 18.06.2010 | Sumarlokun 
 :: 08.06.2010 | Kvikmyndasýning í tilefni Evrópuárs gegn fátækt og félagslegri einangrun 
 :: 03.06.2010 | Kynningarfundur um stofnun samvinnufyrirtækis 
 :: 02.06.2010 | Morgunverðarfundur um fátækt. 
 :: 21.05.2010 | Opinn framboðfundur Öryrkjabandalags Íslands 
 :: 20.05.2010 | Ályktun um nýtt örorku- og starfshæfnismat 
 :: 20.05.2010 | Fyrirhuguðum niðurskurði mótmælt harðlega 
 :: 19.05.2010 | Lækkuð greiðslubyrði - Afskriftir lána - Bætt réttarstaða lántakenda 
 :: 23.04.2010 | Aðalfundur 4. maí kl 20:00 
 :: 24.03.2010 | Útgáfu afsláttarkortsins á plastformi hefur verið hætt. 
 :: 05.03.2010 | Opið hús í Síðumúla 6, n.k. mánudag, 8. mars  
 :: 20.02.2010 | Námskeið framundan hjá Hringsjá 
 :: 16.02.2010 | Bjarnfreðarson fyrir heyrnarskerta og enskumælandi 
 :: 05.02.2010 | Halaleikhópurinn kynnir: 
 :: 31.01.2010 | Áhugavert af heimasíðu ÖBÍ 
 :: 25.12.2009 | Verndum heyrnina - sýnum varúð!! 
 :: 21.12.2009 | Jólakveðja 
 :: 18.11.2009 | „Opið hús“ fellur niður 

Langholtsvegi 111 - 104 Reykjavík - Sími: 551 5895 - Fax: 551 5835 - Kt.: 600169-5489 - Netfang: heyrnarhjalp@heyrnarhjalp.is - Opið þriðjudag til föstudag kl 11:00 til 14:00, lokað mánudaga