![]() | ![]() |
|
Heyrnar- og talmeinastöð Íslands býður til kynningar á starfsemi sinni og sýningar á heyrnartækjum og öðrum hjálparbúnaði fyrir heyrnarskerta og heyrnarlausa laugardaginn 23. september kl. 12-16. Á fyrstu hæð Valhallar kynnir starfsfólk HTÍ og sérfræðingar frá fyrirtækjunum Widex, Phonak og Rexton – Siemens það nýjasta sem er í boði af heyrnartækjum og öðrum hjálparbúnaði. Í hliðarsal verður starfsfólk Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar með stutta fyrirlestra um heyrnarskerðingu og talmein: 13:00 Heyrnarskerðing Ingibjörg Hinriksdóttir, yfirlæknir HTÍ 13:30 Málþroski barna Friðrik Rúnar Guðmundsson talmeinafræðingur Hlé 14:30 Heyrnarskerðing (sami fyrirlestur og kl. 13:00) Ingibjörg Hinriksdóttir, yfirlæknir HTÍ 15:00 Hvað eru talmein? Friðrik Rúnar Guðmundsson talmeinafræðingur Starfsfólk HTÍ tekur svo á móti gestum og sýnir aðstöðu stofnunarinnar á fjórðu hæð. Leitast verður við að svara fyrirspurnum og hægt verður að bóka tíma í heyrnarmælingu.
HEYRNARHJÁLP HVETUR HEYRNARSKERTA OG AÐSTANDENDUR TIL AÐ NÝTA SÉR ÞESSA FRÆÐSLU.
Öryrkjabandalag Íslands ætlar að fjalla um aðgerðir lífeyrissjóða gegn öryrkjum á aðalstjórnarfundi sínum n.k. fimmtudag, 21. september. Nokkur umræða hefur verið um málið í fjölmiðlum og hafa um 400 manns leitað til ÖBÍ vegna fyrirhugaðra skerðinga á áunnum lífeyrisréttindum. Félagsmenn okkar sem lenda í þessum aðgerðum og hafa ekki enn leitað stuðnings hjá okkur eða ÖBÍ eru hvattir til að hafa samband hið allra fyrsta. Aðalfundur Öryrkjabandalagsins verður 18. október n.k. og daginn eftir stendur bandalagið fyrir ráðstefnu um endurhæfingu á Grand Hóteli, Reykjavík.
Nú er Fréttabréfið komið í prentun og verður það sent út í næstu viku. Þar eru m.a. kynntir símar og færanlegir tónmöskvar sem hægt er að fá hér í verslunum. Þegar að er gáð, er úrval af símum fyrir heyrnarskerta nokkuð gott, en fólk veit ekki hvert það á að snúa sér til að fá þessa síma. Við buðum nokkrum aðilum að kynna þennan búnað á aðalfundi og er gott yfirlit yfir vörurnar í Fréttabréfinu. Við hvetjum heyrnarskerta til að nýta sér þjónustuna og afslættina sem eru í boði fyrir okkar félagsmenn. Við minnum á SUMARLOKUN skrifstofunnar, en hún verður lokuð frá og með 11. júlí. Við opnum aftur þriðjud. 8. ágúst. Minnum á að rafhlöður í heyrnartæki eru seld í flestum apótekum á höfuðborgarsvæðinu og víða út um land. 30.júní 2006
Aðalfundinn sóttu rúmlega 30 manns. Fundarstjóri var kosinn Aðalsteinn Garðarsson og fundarritari Halla B. Þorkelsson. Formaður flutti skýrslu stjórnar, framkvæmdastjóri skýrði reikninga liðins árs. Tillaga stjórnar um óbreytt félagsgjald var samþykkt. Stjórn félagsins skipa: Guðjón Ingi Stefánsson, formaður Í aðalstjórn voru kosin: Aðalsteinn Garðarsson, Guðrún Sigurðardóttir, Halla B. Þorkelsson og Sigurður Hallgrímsson. Í varastjórn voru kosnar: Unnur Berg Árnadóttir og Andrea Guðnadóttir. Skoðunarmenn reikninga: Hjörtur Jónsson og Grétar Snær Hjartarson. Finnur Jónsson, fyrrverandi varaformaður og Hörður Sigurðsson fyrrverandi varastjórnarmaður gáfu ekki kost á sér til endurkjörs. Eru þeim færðar þakkir fyrir vel unnin störf í þágu félagsins á undanförnum árum. Nýkosnir stjórnarmenn eru boðnir velkomnir til starfa fyrir félagið. Þema aðalfundar voru tvö: Menntunarmál heyrnarskertra og kynning á hjálpartækjum. Framkvæmdastjóri félagsins sagði frá NHS fundi (norræn félög heyrnarskertra) sem haldinn var hér á landi í byrjun maí. Þar voru menntunarmál heyrnarskertra í brennidepli. Fjallað verður um efnið í Fréttabréfinu sem nú er í smíðum. Þrjú fyrirtæki kynntu síma og færanlega tónmöskva fyrir heyrnarskerta. Einnig var boðið upp á tilboð eða afslætti fyrir félagsmenn. Þessi fyrirtæki hafa lagt sig fram um að bjóða upp á lausnir fyrir heyrnarskerta. Fyrirtækin eru: Símabær, Hátækni og Heyrnartækni, sem öll eru í Reykjavík. Frekari kynning verður á þessari þjónustu í Fréttabréfinu.
Aðalfundur Heyrnarhjálpar. Þriðjudaginn, 23. maí n.k. heldur Félagið Heyrnarhjálp aðalfund sinn. Fundarstaður er Fosshótel Lind við Rauðarárstíg. Húsið opnar kl. 19.30 með kynningu á símum fyrir heyrnarskerta og færanlegum tónmöskum. Nokkur fyrirtæki kynna sérbúna síma fyrir heyrnarskerta, borðsíma, þráðlausa síma og gsm-síma. Færanlegir tónmöskvar eru einkum notaðir við sjónvörp, útvörp og gsm-síma. Einhver tilboð verða á búnaði á fundinum. Dagskrá aðalfundar: Kl. 19.30 Kynning á símum og færanlegum tónmöskvum Kl. 20.00 Aðalfundur settur Skýrsla stjórnar Sagt frá norrænni ráðstefnu um menntunarmál heyrnarskertra Venjuleg aðalfundarstörf Önnur mál Kaffiveitingar verða í fundarhléi. Í salnum verður tónmöskvi og fundurinn verður rittúlkaður. Mætið vel og stundvíslega og takið þátt í umræðu kvöldsins. |
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Langholtsvegi 111 - 104 Reykjavík - Sími: 551 5895 - Fax: 551 5835 - Kt.: 600169-5489 - Netfang: heyrnarhjalp@heyrnarhjalp.is - Opið þriðjudag til föstudag kl 11:00 til 14:00, lokað mánudaga |