Síður
 :: Forsíða
 :: Um Heyrnarhjálp
 :: Fréttabréf
 :: Heyrnartæki
 :: Tinnitus og Ménières
 :: Heyrnarskerðing
 :: Textunarmál
 :: Umræður
 :: Tenglar

 Leita á síðunni
  

  

 Rokk-tónlist og eyrnasuð.

Kaizers Orchestra, sem er þekkt rokk-hljómsveit í Osló verður að horfast í augu við að hljómsveitar-meðlimirnir hafa ofboðið sjálfum sér með tónlistarflutningi sínum.  Þessir hressu ungu menn þjást af sársaukafullu og erfiðu eyrnasuði, sem þeir gæfu mikið fyrir að vera lausir við. Norska Dagblaðið skrifaði um þessi mál á dögunum.

 

15.mars 2006

 Sameining rædd í þættinum “Ísland í dag”

Sameining Heyrnar-og talmeinastöðvar og Sjónstöðvar Íslands verður rædd í þættinum “Ísland í dag” á Stöð2 í kvöld.  Blindrafélagið hefur sent út ályktun um frumvarpið og lýsir sig andvígt frumvarpinu.

 

22. febrúar 2006.

 ÁHUGAVERÐ RÁÐSTEFNA Í LOK MAÍ.

 

NAS, Nordisk Audiologisk Selskap (Norrænt félag í heyrnarfræðum) heldur mjög áhugaverða ráðstefnu í Stavanger, Noregi  28.-31. maí 2006.

NAS vinnur þverfaglega og að félaginu koma allar stéttir fagfólks í heyrnarfræðum á Norðurlöndum og samtök heyrnarskertra og áhugamanna um málefni þeirra sem lifa með heyrnarskerðingu og/eða önnur heyrnarmein.

Ráðstefnur NAS eru öllum opnar.  Dagskrá er vönduð og fjölbreytt.  Fjallað verður m.a. um heyrnartap barna, eyrnasuð eða tinnitus, lífsgæði og mikilvægi þess að líta heildrænt á vandamál einstaklingsins og miða þjónustuna við það.

Auk fyrirlestra mæta allir helsu framleiðendur heyrnartækja og annarra hjálpartækja og kynna það nýjasta sem er á markaðnum í dag. 

Frekari upplýsingar er að fá á skrifstofu Heyrnarhjálpar og á vefsíðunni: www.nas-stavanger2006.org

Lægsta ráðstefnugjald gildir fyrir þá sem skrá sig fyrir 1. mars n.k.

                                                                                                                                                  10.02.2006

 

 FARÐU VARLEGA - verndaðu heyrnina!!

 

NÝ HEYRNARTÓL sem fylgja  iPod og öðrum MP3-spilurum geta haft skaðleg áhrif á heyrnina. Þessi nýju heyrnartól falla betur inn í hlustina en eldri gerðir og samkvæmt athugunum sem gerðar voru við Northwestern háskólann í Bandaríkjunum geta þau skaðað heyrnina meira en eldri gerðir heyrnartóla.

 

Notendur eru hvattir til að fara varlega og láta ekki eftir sér að hækka of mikið í tækjunum og vera meðvitaðir um að hávaðaskaði kemur smátt og smátt og hættan er því meiri sem tíminn í hávaðanum verður lengri.

 

Varað hefur verið við hávaðaskemmdum af hlustun með heyrnartólum mjög lengi, og kannanir sýna að unga fólkið hefur ekki haft miklar áhyggjur af heyrnartapi fram að þessu, litið á heyrnartap sem vandamál gamla fólksins.  Nokkur vakning hefur þó orðið síðustu ár, enda sýna kannanir að svo kallaðar elli heyrnardeyfur koma sífellt fram hjá yngra og yngra fólki.  Eins hefur tinnitus eða eyrnasuð aukist mjög hjá öllum, ekki síst ungu fólki.

 

Heyrnarskaði verður ekki aftur tekinn!!

                                                                                                                                    febrúar 2006

 Nýtt Fréttabréf komið á netið.

Tvö Fréttabréf voru gefin út árið 2005. Það síðara kom út í Desember og er það nú komið á vefinn í heild sinni.  Þið farið inn á Fréttabréf hér til vinstri á síðunni og getið þar lesið nýjustu Fréttabréfin okkar og nokkur eldri.

 

Fréttabréf 2.2005 er bæði efnismikið og fjölbreytt. Við fengum áhugafólk og fagfólk til liðs við okkur og eru margar fróðlegar greinar í ritinu. Valdís Jónsdóttir skrifar um hávaða í kennslustofum.  Fanney Einarsdóttir skrifar um afleiðingar þess að heyra aðeins með öðru eyranu, Málfríður Gunnarsdóttir gerir hávaða á skemmtistöðum að umtalsefni og Ellisif K. Björnsdóttir segir frá þingi heyrnarfræðinga.  Valgerður Stefánsdóttir skýrir afstöðu Samskiptamiðstöðvar heyrnalausra og heyrnarskertra til rittúlkunar.  Auk ofantalinna greina eru ýmis tíðindi af starfi okkar og félagsmálum ásamt smáfréttum og ýmsum fróðleiksmolum.                                                                                                                                                                      Janúar 2006

Síða: Til baka 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 Næst
 
 Hafðu samband!

Ef þú hefur einhverjar spurningar eða ábendingar sendu okkur póst með því að smella hér


 Hvað er aðgengi fyrir heyrnarskert fólk?

Aðgengi heyrnarskerts táknar að honum sé gert kleyft að skilja það sem fram fer í umhverfinu.


>>  Lesa meira

 Eldra efni
 :: 05.072010. | Gistisamningur milli Fosshótela og Öryrkjabandalags Íslands.  
 :: 02.07.2010 | Ný samþykkt lög frá Alþingi 
 :: 18.06.2010 | Sumarlokun 
 :: 08.06.2010 | Kvikmyndasýning í tilefni Evrópuárs gegn fátækt og félagslegri einangrun 
 :: 03.06.2010 | Kynningarfundur um stofnun samvinnufyrirtækis 
 :: 02.06.2010 | Morgunverðarfundur um fátækt. 
 :: 21.05.2010 | Opinn framboðfundur Öryrkjabandalags Íslands 
 :: 20.05.2010 | Ályktun um nýtt örorku- og starfshæfnismat 
 :: 20.05.2010 | Fyrirhuguðum niðurskurði mótmælt harðlega 
 :: 19.05.2010 | Lækkuð greiðslubyrði - Afskriftir lána - Bætt réttarstaða lántakenda 
 :: 23.04.2010 | Aðalfundur 4. maí kl 20:00 
 :: 24.03.2010 | Útgáfu afsláttarkortsins á plastformi hefur verið hætt. 
 :: 05.03.2010 | Opið hús í Síðumúla 6, n.k. mánudag, 8. mars  
 :: 20.02.2010 | Námskeið framundan hjá Hringsjá 
 :: 16.02.2010 | Bjarnfreðarson fyrir heyrnarskerta og enskumælandi 
 :: 05.02.2010 | Halaleikhópurinn kynnir: 
 :: 31.01.2010 | Áhugavert af heimasíðu ÖBÍ 
 :: 25.12.2009 | Verndum heyrnina - sýnum varúð!! 
 :: 21.12.2009 | Jólakveðja 
 :: 18.11.2009 | „Opið hús“ fellur niður 

Langholtsvegi 111 - 104 Reykjavík - Sími: 551 5895 - Fax: 551 5835 - Kt.: 600169-5489 - Netfang: heyrnarhjalp@heyrnarhjalp.is - Opið þriðjudag til föstudag kl 11:00 til 14:00, lokað mánudaga