Síður
 :: Forsíða
 :: Um Heyrnarhjálp
 :: Fréttabréf
 :: Heyrnartæki
 :: Tinnitus og Ménières
 :: Heyrnarskerðing
 :: Textunarmál
 :: Umræður
 :: Tenglar

 Leita á síðunni
  

  

 Fundur með menntamálaráðherra um rittúlkun.

Þann 11. janúar s.l. fundaði Heyrnarhjálp með menntamálaráðherra, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, um rittúlkun.  Fulltrúar Heyrnarhjálpar lögðu áherslu á að kynna fyrir fulltrúum ráðuneytisins mikilvægi rittúlkunar fyrir ákveðinn hóp heyrnarskertra og heyrnarlausra.  Við komum til fundarins í von um að mismunun yrði leiðrétt, þannig að heyrnarskertir og heyrnarlausir hefðu í framtíðinni frjálst val milli rittúlkunar og táknmálstúlkunar.   Eins ræddum við úthlutunarkerfið og leiðir til að gera það notendavænna.

Þorgerður Katrín sagðist mun upplýstari um þessi mál eftir að hafa hitt okkur og hafa fullan skilning á þessum væntingum okkar. Hún sér að það er óréttlát gagnvart hluta þeirra, sem þurfa túlkaþjónustu að fé til félagslegrar túlkunar sé eingöngu varið til táknmálstúlkunar. Þorgerður Katrín sagði  greinilegt að endurskoða þurfi túlkunarmálin í víðu samhengi og gera kerfið skilvirkt, einfalt og réttlátara en það er í dag. Ráðherra lýsti yfir fullum skilningi og vilja til að leiðrétta þá mismunun sem er til staðar milli túlkunarforma, en gat engu lofað um tíma. Finna þarf fé til að gera betur og vill ráðherra sjá fleiri ráðuneyti koma að málinu.  Staðsetja þarf þessa þjónustu í kerfinu, því hún eigi í raun hvergi “heima”. Hún taldi ekki útilokað að setja á stofn nefnd sem endurskoðaði þjónustuna, lög og reglugerðir, sem skilaði af sér fyrir næstu fjárlagagerð.

Niðurstaða fundarins …….

Aukin þekking og skilningur í ráðuneytinu á stöðu heyrnarskertra og þeirra þörfum.

Yfirlýsing frá ráðherra um að fara dýpra í málið innan ráðuneytisins og að hún muni

taka málið upp við félagsmálaráðherra og fleiri.

Ráðherra sagði augljóst að þarna þyrfti leiðréttingu.

Ráðherra þakkaði greinagóðar upplýsingar og góðan fund. Fulltrúar Heyrnarhjálpar gera sér vonir um að fundurinn leiði til góðra verka.

Janúar  2006

 Texti er okkar tromp!!

Frumvarp til laga um textun.

Menntamálanefnd Alþingis hefur sent félaginu til umsagnar frumvarp til laga um textun sjónvarpsefnis, kvikmynda o.fl.

Félagið Heyrnarhjálp fagnar mjög flutningi þessa frumvarps. 

Flutningsmenn frumvarpsins eru: Guðjón A. Kristjánsson, Sigurjón Þórðarson, Kolbrún Halldórsdóttir, Guðrún Ögmundsdóttir, Björgvin G. Sigurðsson og Katrín Júlíusdóttir.

Markmið frumvarpsins er að tryggja heyrnarskertum og heyrnarlausum aðgang að upplýsingum, afþreyingar- og fræðsluefni til jafns við þá sem hafa fulla heyrn.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis:www.althingi.is/altext/132/s/0042.html  

     Janúar 2006

 

 Nýr framkvæmdastjóri Öryrkjabandalagsins.

Hafdís Gísladóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Öryrkjabandalags Íslands og tekur hún til starfa þann fyrsta febrúar n.k. Frá ráðningu hennar var formlega gengið á fundi framkvæmdastjórnar ÖBÍ í vikunni. Hafdís er leikskólakennari að mennt með sérkennsluréttindi frá Háskólanum í Osló. Hún er nú við það að ljúka meistaranámi í stjórnsýslufræðum við Háskóla Íslands. Hafdís var framkvæmdastjóri Félags heyrnarlausra frá 1997 til 2005. Á síðasta ári gegndi hún stöðu framkvæmdastjóra Þjónustumiðstöðvar Reykjavíkurborgar- miðborgar og hlíða. Hafdís var fulltrúi í aðalstjórn ÖBÍ frá 1997 til 2003 og átti sæti í framkvæmdastjórn Öryrkjabandalagsins frá 1998 til ársins 2000. Hafdís er boðin velkomin til starfa.

 

Tilkynning frá framkvæmdastjórn ÖBÍ                                                                                         Janúar 2006

 Sameining Heyrnar-og talmeinastöðvar og Sjónstöðvar Íslands.


Ráðherra, Jón Kristjánsson, boðaði hagsmunaaðila til fundar nýverið til að kynna þeim hugmyndir ráðuneytisins að sameiningu þessara tveggja þjónustustofnana.  Ávinningurinn á að koma fram í hagræðingu og sterkari stofnun. Stefnt er að því að sameiningin geti gengið hratt fyrir sig og verði jafnvel lokið fyrir næstu áramót.

Hagsmunafélaögin hafa rætt saman og telja að málið þurfi skoðunar við. Heyrnarskertir/lausir og  sjónskertir/blindir þurfa mjög sérhæfða þjónustu hvor hópur um sig og ekki er auðvelt að koma auga á að sérfræðiþekking nýtist milli sviða. Í hverju liggur hagræðingin??  Eiga aðrar stofnanir, sem sinna þessum hópum erindi í þetta samstarf?..??????

 

Hvaða skoðun hefur þú lesandi góður á þessum samruna?  Er líklegt að hann bæti þjónustuna við þessa hópa?  Eigum við samleið?.........

 

Heyrnarhjálp bendir ykkur á að taka málið upp á umræðuvefnum okkar. Önnur leið er að taka upp símann og hringja í okkur eða senda tölvupóst.
[29.09.2005 13:30 - Heyrnarhjálp]

 NÝR UMRÆÐUGRUNNUR.


Ágætu lesendur.

 

Þá er hann kominn í loftið, nýi umræðugrunnurinn. Væntingar okkar eru þær að þessi breyting skili sér í líflegri vef, betri skoðanaskiptum og betri líðan fyrir þá sem taka þátt í umræðunni.  Það er margsannað að tengsl við aðra, sem berjast við sama vandamál og maður sjálfur, eru gefandi og skoðanaskiptin leiða oft til þess, að maður sér vandamálið í nýju ljósi og fær jafnvel góð ráð sem nýtast vel.


>> Lesa meira [28.05.2005 23:15 - Heyrnarhjálp]

Síða: Til baka 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 Næst
 
 Hafðu samband!

Ef þú hefur einhverjar spurningar eða ábendingar sendu okkur póst með því að smella hér


 Hvað er aðgengi fyrir heyrnarskert fólk?

Aðgengi heyrnarskerts táknar að honum sé gert kleyft að skilja það sem fram fer í umhverfinu.


>>  Lesa meira

 Eldra efni
 :: 05.072010. | Gistisamningur milli Fosshótela og Öryrkjabandalags Íslands.  
 :: 02.07.2010 | Ný samþykkt lög frá Alþingi 
 :: 18.06.2010 | Sumarlokun 
 :: 08.06.2010 | Kvikmyndasýning í tilefni Evrópuárs gegn fátækt og félagslegri einangrun 
 :: 03.06.2010 | Kynningarfundur um stofnun samvinnufyrirtækis 
 :: 02.06.2010 | Morgunverðarfundur um fátækt. 
 :: 21.05.2010 | Opinn framboðfundur Öryrkjabandalags Íslands 
 :: 20.05.2010 | Ályktun um nýtt örorku- og starfshæfnismat 
 :: 20.05.2010 | Fyrirhuguðum niðurskurði mótmælt harðlega 
 :: 19.05.2010 | Lækkuð greiðslubyrði - Afskriftir lána - Bætt réttarstaða lántakenda 
 :: 23.04.2010 | Aðalfundur 4. maí kl 20:00 
 :: 24.03.2010 | Útgáfu afsláttarkortsins á plastformi hefur verið hætt. 
 :: 05.03.2010 | Opið hús í Síðumúla 6, n.k. mánudag, 8. mars  
 :: 20.02.2010 | Námskeið framundan hjá Hringsjá 
 :: 16.02.2010 | Bjarnfreðarson fyrir heyrnarskerta og enskumælandi 
 :: 05.02.2010 | Halaleikhópurinn kynnir: 
 :: 31.01.2010 | Áhugavert af heimasíðu ÖBÍ 
 :: 25.12.2009 | Verndum heyrnina - sýnum varúð!! 
 :: 21.12.2009 | Jólakveðja 
 :: 18.11.2009 | „Opið hús“ fellur niður 

Langholtsvegi 111 - 104 Reykjavík - Sími: 551 5895 - Fax: 551 5835 - Kt.: 600169-5489 - Netfang: heyrnarhjalp@heyrnarhjalp.is - Opið þriðjudag til föstudag kl 11:00 til 14:00, lokað mánudaga