![]() | ![]() |
|
Félagsmenn eru hvattir til að mæta og nýta sér um leið kynningu á heyrnar- og hjálpartækjum, en Heyrnar- og talmeinastöð og Heyrnartækni ehf. munu kynna helstu nýjungar. Einnig sýnir Heyrnarhjálp nokkur tæki, sem við erum með til útláns og kynningar hjá okkur. Fundargestum gefst tækifæri til að ganga á milli sýningarborða. Þar verða fulltrúar fyrirtækjanna/félagsins og veita upplýsingar og leyfa fólki að sjá hvernig tækjabúnaðurinn virkar. Þar sem miklar framfarir eru í tæknibúnaði fyrir heyrnarskerta finna eflaust allir eitthvað nýtt á þessari sýningu. Við leggjum áherslu á gott aðgengi sem fyrr. Tónmöskvi, rittúlkur, kaffiveitingar. Mætið vel og stundvíslega. Stjórnin
Fréttabréf 1. 2005 er nú komið út. Það verður sett í póst til félagsmanna í dag. Í Fréttabréfinu eru margar athyglisverðar greinar og upplýsingar um nýja tækni, en komin eru á markað heyrnartæki sem þola vatn. "Augun voru eyrun mín" er heiti greinar um kuðungsígræðslu, en þar segir Hjördís Guðmundsdóttir frá einstakri lífsreynslu, en hún missti heyrn barnung og hefur alla tíð síðan notað heyrnartæki. Hún hefur verið nánast heyrnarlaus í 40 ár og er nú að aðlagast nýrri tækni, sem gefur henni nýja möguleika. Heilbrigðisráðuneytið hefur sent okkur bréf, þar sem þeir tilkynna okkur að eyrnasuðsmóttakan, sem væntanleg er í Heyrnar-og talmeinastöðina, verði því miður ekki sett í forgang við fjárlagagerð næsta árs. Þetta eru mikil vonbrigði. Fréttabréfið er 40 síður. Efni 1. tölublaðs 2005: Frá framkvæmdastjóra. Bréf frá lesanda. Ný heyrnarstöð. Vatnsþétt heyrnartæki. Ráðstefna um hávaða í umhverfi barna. Augun voru eyrun mín. Áhrif hreyfingar á andlega líðan. Auglýsingar um: Aðalfund 2005. Ógreidd félagsgjöld. Starf í Stokkhólmi.
Aðalfundur Félagsins Heyrnarhjálpar verður haldinn miðvikudaginn 18. maí n.k. Fundurinn hefst kl. 20.00 Fundarstaður er: Foss Hótel Lind við Rauðaarárstíg Í tengslum við aðalfundinn verður haldin sýning á heyrnar-og hjálpartækjum. Á fundinum verður að venju tónmöskvi og rittúlkur. Fólk er hvatt til að mæta og nýta sér gott tækifæri til að kynna sér tækniframfarir og nýjungar.
Heyrnar-og talmeinastöðin sendi nýverið út fréttatilkynningu um styttingu á biðlistum og eins tilkynntu þeir verðlækkun á heyrnartækjum. Við fögnum þessum fréttum og vonum að stöðinni takist að halda áfram á sömu braut.
Ný heyrnarstöð, Heyrnarstöðin ehf. hefur tekið til starfa í Læknastöðinni Uppsölum á 3ju hæð í Kringlunni 4-12. Veita þeir alla almenna þjónustu fyrir heyrnartækjanotendur. Fólk getur pantað tíma í læknisskoðun og heyrnarmælingu, fengið ráðgjöf við val á heyrnartækjum og er stöðin með úrval heyrnartækja til sölu.
Tæknivinnu við nýjan samskiptavef okkar er nú að mestu lokið. Undirbúningsvinnan hefur tekið heldur meiri tíma en við væntum. Staðan í dag gerir okkur bjartsýn á að eigi síðar en í næstu viku fari nýi vefurinn í loftið. [20.04.2005 13:15 - Heyrnarhjálp]
Vinna við endurbætur á heimasíðu félagsins er nú langt komin. Við gerum ráð fyrir að ljúka verkinu í næstu viku. Endurbæturnar hafa fyrst og fremst miðast við að gera umræðugrunninn opnari og þægilegri fyrir notendur. Að öðru leyti er viðmót heimasíðunnar óbreytt. Vefstjórn síðunnar er nú flutt á skrifstofuna og á það að gera allar uppfærslur á efni hennar auðveldari og fljótvirkari. Fréttabréf 1.2005 er nú í vinnslu og fer út fyrir miðjan apríl. Félagsgjöld 2004 hafa ekki skilað sér nógu vel og hvetjum við félagsmenn til að ganga frá því hið fyrsta. Aðalfundur félagsins verður í maí og verður auglýstur hér á síðunni, þegar nær dregur. Síða: Til baka 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 Næst |
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Langholtsvegi 111 - 104 Reykjavík - Sími: 551 5895 - Fax: 551 5835 - Kt.: 600169-5489 - Netfang: heyrnarhjalp@heyrnarhjalp.is - Opið þriðjudag til föstudag kl 11:00 til 14:00, lokað mánudaga |