
| Síður | | :: :: :: :: :: :: :: :: ::
|
| |
 |  | | Þankar lesenda (úr fréttabréfi Heyrnarhjálpar) |  |  |
Þórður Örn Kristjánsson, sendi okkur bréf vegna vandræða sinna með að fá rittúlk. Þarna kemur hann inn á vandamál, sem við höfum reynt að vekja athygli á hér í Fréttabréfinu og eins í viðtölum við embættismenn. Ég bauð Þórði að skrifa greinarstúf um þessi mál og eins og fram kemur hjá Þórði er rittúlkur oft á tíðum besta hjálpin fyrir suma heyrnarlausa og flesta heyrnarskerta við ótal margar aðstæður.
>> Lesa meira
Ágætu lesendur.
Nú stendur yfir endurskoðun á heimasíðu félagsins. Við viljum gera umræðuvefinn aðgengilegri og að því er unnið núna.
Meniett-tæki hefur verið keypt og unnið er við að gera útlánareglur um það. Forsenda fyrir notkun á þessu tæki er að háls-nef- og eyrnalæknir mæli með því og setji rör í hljóðhimnur. Útlán verður því alltaf í samráði við lækna. Tveir hafa tímabundið nýtt sér lánstækið, sem hér var. Viðkomandi telja að nokkur árangur hafi náðst, en þó þarf að fá fleiri aðila til að reyna og hver einstaklingur gæti þurft að nota tækið í fleiri en eitt skipti, því hér er um sveiflukenndan sjúkdóm að ræða.
|
Á stjórnarfundi Heyrnarhjálpar þann 1. september síðastliðinn var ákveðið að festa kaup á einu Meniett tæki, en slík tæki eru ætluð til meðhöndlunar á svimaköstum méniére's sjúklinga.
Til stendur að lána tækið út til méniére's sjúklinga í samráði við lækna en forsendan fyrir því að tækið skili tilætluðum árangri er að læknir hafi sett rör í gegnum hljóðhimnu viðkomandi þannig að loftþrýstipúlsar sem tækið gefi frá sér geti náð inn í miðeyrað.
TM-hópur Heyrnarhjálpar mun halda fund þann 29. september kl. 18:00 í húsakynnum félagsins að Snorrabraut 29 þar sem tækið verður kynnt betur. Allir eru velkomnir en méniére's sjúlkingar eru sérstaklega hvattir til að mæta.
Þeim sem vilja kynna sér tækið frekar er bent á heimasíðu framleiðandans www.meniett.com. |
|
|
|
|
Tinnitus-Hópur hittist í húsnæði Heyrnarhjálpar miðvikudaginn 26. maí síðastliðinn. Jensína Waage sem glímt hefur við méniére's sjúkdóm í 14 ár sagði frá reynslu sinni af sjúkdómnum og af notkun Meniett tækisins.
Ákveðið var að hittast aftur í haust. Nánar auglýst á heimasíðunni |
|
 |  | | Vefurinn, .........ertu til í að leggja málinu lið?? |  |  | Aðalsteinn Garðarsson hefur tekið að sér að verða vefstjóri á nýja vefnum okkar, en við þurfum með okkur n.k. ritsjórn og væri gott að þar væru fulltrúar fyrir alla hópa og hver sjái t.d. um sinn málaflokk. Við sjáum fyrir okkur að “ritstjóri” haldi utan um þessa vinnu með framkvæmdastjóra. Hér erum við að leita að fólki, sem þekkir hvar skórinn kreppir og vill koma á framfæri efni og áhugaverðum upplýsingum. Enn eru þið hvött til að smella á heyrnarhjalp@centrum.is og láta heyra í ykkur. Síða: Til baka 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 Næst
| | 
| Hafðu samband! | | Ef þú hefur einhverjar spurningar eða ábendingar sendu okkur póst með því að smella hér |
| Hvað er aðgengi fyrir heyrnarskert fólk? | | Aðgengi heyrnarskerts táknar að honum sé gert kleyft að skilja það sem fram fer í umhverfinu.
>> Lesa meira
|
| Eldra efni | | :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: :: ::
|
|