Síður
 :: Forsíða
 :: Um Heyrnarhjálp
 :: Fréttabréf
 :: Heyrnartæki
 :: Tinnitus og Ménières
 :: Heyrnarskerðing
 :: Textunarmál
 :: Umræður
 :: Tenglar

 Leita á síðunni
  

  

 Textunarfrumvarp
Allir sem nýta vilja texta með íslensku efni hafa ástæðu til bjartsýni þessa dagana.  Heyrnarhjálp fagnar vissulega að sjá nú nokkurn árangur margra ára vinnu við að vekja athygli á nauðsyn texta fyrir stóran hóp Íslendinga.  Textaþingið í nóvember 2002 var einn af stóru viðburðunum, sem hafði jákvæð áhrif á viðhorf stjórnvalda.  Nú hefur Sigurlín Margrét Sigurðardóttir, varaþingmaður, náð eyrum alþingismanna og er henni þakkaður flutningur frumvarps til laga um textun á efni í sjónvarpi og kvikmyndum.
>> Lesa meira [25.03.2004 10:07 - Aðalsteinn]

 Meniett........hvað er það??
Meniett er lítið handhægt tæki, sem notað er til að draga úr einkennum Méniéres sjúkdóms.  Tækið er þróað í Svíþjóð og hófst þróun þess upp úr 1985 og kom á markað þar um 1990.  Þetta tæki hefur Hannes Petersen, háls-nef og eyrnalæknir mikinn áhuga á að fá til landsins.  Hefur hann tekið málið upp við okkur m.a. og á stjórnarfundi 10. mars s.l. var samþykkt að við leitum leiða til að kaupa slíkt tæki til útláns fyrir þolendur.  Sjá nánar umfjöllun í næsta Fréttabréfi. Einnig er hægt að kynna sér málið á heimasíðu framleiðandans http://www.meniett.com/local_overpressure_treatment.html

 Kvennahreyfing innan ÖBÍ?
Fimmtudaginn 19. febrúar ætla konur innan Öryrkjabandalagsins að hittast og ræða hvort það sé tímabært að stofna kvennahreyfingu innan ÖBÍ.

 Vefur Heyrnarhjálpar

Markmið félagsins með þessum nýja vef er að bæta þjónustuna við okkar félagsmenn, ekki síst þá sem búa úti á landi. Markmiðið er einnig að gera möguleg samskipti milli fólks með svipaða reynslu.

Komin er reynsla á að samskiptaúrræði sem þetta nýtist mörgum vel. Það að  komast í samband við aðra með svipaða lífsreynslu er gefandi og leiðir oft til úrræða sem hjálpa viðkomandi. 

Einnig er hægt að senda fyrirspurnir inn á vefinn, sem beinast til annarra vefgesta eða til félagsins og munum við reyna að sinna þjónustu við vefinn reglubundið.

 

Vefur þessarar gerðar byggist mjög á þeim sem nota hann.  Vefstjórn er nauðsynleg og auglýsum við hér með eftir fólki til að vinna með vefstjóra og félaginu við uppbyggingu hans. Fólk er vinsamlegst beðið að koma skilaboðum beint inn á vefinn eða til félagsins.

 

Látið endilega heyra frá ykkur og gefið kost á ykkur til starfa fyrir málefnið.

Ráðherra opnar formlega nýjan vef Heyrnarhjálpar

Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra opnaði nýjan vef Heyrnarhjálpar á ráðstefnu um eyrnasuð.

 Suð og svimi. Hvað er á seyði?

Loksins er umræða hafin um erfitt heilsufarsvandamál. Þar á ég við eyrnasuð, afleiðingar þess og tengda sjúkdóma.  Orð eru til alls fyrst, en í kjölfarið þurfa verkin að tala.

 

Undirritaður var greindur með sjúkdóminn Méniéres fyrir u.þ.b. áratug.  Méniéres veldur suði eða hljóðum í eyra, heyrnarskerðingu og miklum svimaköstum. 

 

Það var um 1990 að tilvera mín tók stökkbreytingu.  Allt í einu upplifði ég mikil óhljóð í hægra eyra og einnig mikið óþol fyrir hljóðum. Ef blístrað var á háum nótum olli það sársauka í eyranu. Streitu var um kennt.  Fljótlega fór einnig að bera á heyrnartapi.


>> Lesa meira

Síða: Til baka 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 Næst
 
 Hafðu samband!

Ef þú hefur einhverjar spurningar eða ábendingar sendu okkur póst með því að smella hér


 Hvað er aðgengi fyrir heyrnarskert fólk?

Aðgengi heyrnarskerts táknar að honum sé gert kleyft að skilja það sem fram fer í umhverfinu.


>>  Lesa meira

 Eldra efni
 :: 05.072010. | Gistisamningur milli Fosshótela og Öryrkjabandalags Íslands.  
 :: 02.07.2010 | Ný samþykkt lög frá Alþingi 
 :: 18.06.2010 | Sumarlokun 
 :: 08.06.2010 | Kvikmyndasýning í tilefni Evrópuárs gegn fátækt og félagslegri einangrun 
 :: 03.06.2010 | Kynningarfundur um stofnun samvinnufyrirtækis 
 :: 02.06.2010 | Morgunverðarfundur um fátækt. 
 :: 21.05.2010 | Opinn framboðfundur Öryrkjabandalags Íslands 
 :: 20.05.2010 | Ályktun um nýtt örorku- og starfshæfnismat 
 :: 20.05.2010 | Fyrirhuguðum niðurskurði mótmælt harðlega 
 :: 19.05.2010 | Lækkuð greiðslubyrði - Afskriftir lána - Bætt réttarstaða lántakenda 
 :: 23.04.2010 | Aðalfundur 4. maí kl 20:00 
 :: 24.03.2010 | Útgáfu afsláttarkortsins á plastformi hefur verið hætt. 
 :: 05.03.2010 | Opið hús í Síðumúla 6, n.k. mánudag, 8. mars  
 :: 20.02.2010 | Námskeið framundan hjá Hringsjá 
 :: 16.02.2010 | Bjarnfreðarson fyrir heyrnarskerta og enskumælandi 
 :: 05.02.2010 | Halaleikhópurinn kynnir: 
 :: 31.01.2010 | Áhugavert af heimasíðu ÖBÍ 
 :: 25.12.2009 | Verndum heyrnina - sýnum varúð!! 
 :: 21.12.2009 | Jólakveðja 
 :: 18.11.2009 | „Opið hús“ fellur niður 

Langholtsvegi 111 - 104 Reykjavík - Sími: 551 5895 - Fax: 551 5835 - Kt.: 600169-5489 - Netfang: heyrnarhjalp@heyrnarhjalp.is - Opið þriðjudag til föstudag kl 11:00 til 14:00, lokað mánudaga