Síður
 :: Forsíða
 :: Um Heyrnarhjálp
 :: Fréttabréf
 :: Heyrnartæki
 :: Tinnitus og Ménières
 :: Heyrnarskerðing
 :: Textunarmál
 :: Umræður
 :: Tenglar

 Leita á síðunni
  

  

 23.04.2010 | Aðalfundur 4. maí kl 20:00

Aðalfundur Heyrnarhjálpar

verður þriðjudaginn  4. maí kl. 20:00 á Langholtsvegi 111

Venjuleg aðalfundarstörf    Önnur mál

Þema kvöldsins: Framtíðarskipan í málefnum heyrnarskertra.

Gestur fundarins verður Ragnheiður Bóasdóttir, sem er formaður í fram-kvæmdanefnd í málefnum heyrnarlausra og heyrnarskertra.  Hún mun fjalla um verkefni og markmið nefndarinnar. Eftir erindi hennar verða umræður.

Tónmöskvi – Rittúlkur - Kaffitár

 

Mætið öll og takið þátt í umræðu um stefnumarkandi mál fyrir heyrnarskerta.


>> Lesa meira

 24.03.2010 | Útgáfu afsláttarkortsins á plastformi hefur verið hætt.
Frá Sjúkrátryggingum Kemur eftirfarandi tilkynning. Eins og þú/þið vonandi vitið hefur fyrirkomulag afsláttarkorta vegna heilbrigðisþjónustu breyst um áramótin hjá Sjúkratryggingum Íslands (SÍ). Útgáfu afsláttarkortsins á plastformi hefur verið hætt. Þó hefur það verið sent á lögheimili einstaklinga á pappírsformi (A4 formi) ásamt greiðsluskjölum til viðbótar við að hafa þau rafræn í Réttindagátt stofnunarinnar á sjukra.is. • Frá og með þessari viku verður hætt að senda afsláttarkortið og greiðsluskjöl til einstaklinga á pappír. Kortin og skjölin eru aðgengileg á rafrænu formi í gegnum Réttindagáttina. • Einnig er hægt að greiða fyrir heilbrigðisþjónustu án afsláttar og fá endurgreiðslu frá SÍ sem millifærð er á eigin bankareikning. • Ef viðskiptavinir geta ekki notað ofangreindar leiðir má nálgast afsláttarkort og greiðsluskjöl með því að hafa samband við þjónustumiðstöð SÍ eða umboð á landsbyggðinni. Sími stofnunarinnar er 515-0000. SÍ mun kynna þetta í fjölmiðlum í vikunni.

 05.03.2010 | Opið hús í Síðumúla 6, n.k. mánudag, 8. mars

UMFJÖLLUN UM:  HUGRÆNA ATFERLISMEÐFERÐ GEGN SVEFNTRUFLUNUM

 

N.k. mánudag 8. mars verður opið hús í SÍBS húsinu síðdegis skv. venju.

 

Haukur Sigurðsson, sálfræðingur verður með kynningu, sem hefst kl. 16:30, á hugrænni atferlismeðferð gegn svefntruflunum.

 

Allir velkomnir, kaffi á könnunni.

 20.02.2010 | Námskeið framundan hjá Hringsjá

Hringsjá vill láta það berast að það eru nokkur laus pláss á námskeið sem hefjast í næstu viku.  Sjálfstyrkingarnámskeið sem hefst mánudaginn 22. febrúar og grunnnámskeið í tölvum og Excel sem hefjast þriðjudaginn 23. febrúar.

 

Önnur námskeið sem hefjast fljótlega eru: Minnistækni, bókhald, stærðfræði fyrir fullorðna byrjendur og enska fyrir fullorðna byrjendur.  Námsekiðn eru yfirleitt í 2 klst í senn, tvisvar í viku í 5 skipti og þátttakandi greiðir kr. 12.00 í efnisgjöld.  Nánari lýsingar á námskeiðum má finna á heimasíðu okkar www.hringsja.is

 

Þeir sem hafa áhuga hafi samband við Jónu í síma 510-9380 eða á netfangið  jonav@hringsja.is sem allra fyrst!

 

 

Góðar kveðjur, Linda


R. Linda Skúladóttir, forstöðumaður
Logo Hringsjár
Hátúni 10d, 105 Reykjavík
Sími 510 9380 Fax 562 2843

 

 16.02.2010 | Bjarnfreðarson fyrir heyrnarskerta og enskumælandi

Ánægjuleg frétt úr Morgunblaðinu 16. febrúar 2010.

 

Sérstakar sýningar fyrir heyrnarskerta/heyrnarlausa og þá sem skilja ekki íslensku verða á kvikmyndinni Bjarnfreðarson nú í febrúar. Verður myndin sýnd með íslenskum og enskum texta fyrir þessa tvo hópa sem hafa hingað til ekki getað notið hennar sem skyldi.

 

Sýning fyrir heyrnarskerta og heyrnarlausa verður 19. febrúar kl. 17:50 í Sambíóunum Kringlunni og sýning með enskum texta verður 22. febrúar kl. 17:50 í sama bíói.


>> Lesa meira

Síða: Til baka 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 Næst
 
 Hafðu samband!

Ef þú hefur einhverjar spurningar eða ábendingar sendu okkur póst með því að smella hér


 Hvað er aðgengi fyrir heyrnarskert fólk?

Aðgengi heyrnarskerts táknar að honum sé gert kleyft að skilja það sem fram fer í umhverfinu.


>>  Lesa meira

 Eldra efni
 :: 05.072010. | Gistisamningur milli Fosshótela og Öryrkjabandalags Íslands.  
 :: 02.07.2010 | Ný samþykkt lög frá Alþingi 
 :: 18.06.2010 | Sumarlokun 
 :: 08.06.2010 | Kvikmyndasýning í tilefni Evrópuárs gegn fátækt og félagslegri einangrun 
 :: 03.06.2010 | Kynningarfundur um stofnun samvinnufyrirtækis 
 :: 02.06.2010 | Morgunverðarfundur um fátækt. 
 :: 21.05.2010 | Opinn framboðfundur Öryrkjabandalags Íslands 
 :: 20.05.2010 | Ályktun um nýtt örorku- og starfshæfnismat 
 :: 20.05.2010 | Fyrirhuguðum niðurskurði mótmælt harðlega 
 :: 19.05.2010 | Lækkuð greiðslubyrði - Afskriftir lána - Bætt réttarstaða lántakenda 
 :: 23.04.2010 | Aðalfundur 4. maí kl 20:00 
 :: 24.03.2010 | Útgáfu afsláttarkortsins á plastformi hefur verið hætt. 
 :: 05.03.2010 | Opið hús í Síðumúla 6, n.k. mánudag, 8. mars  
 :: 20.02.2010 | Námskeið framundan hjá Hringsjá 
 :: 16.02.2010 | Bjarnfreðarson fyrir heyrnarskerta og enskumælandi 
 :: 05.02.2010 | Halaleikhópurinn kynnir: 
 :: 31.01.2010 | Áhugavert af heimasíðu ÖBÍ 
 :: 25.12.2009 | Verndum heyrnina - sýnum varúð!! 
 :: 21.12.2009 | Jólakveðja 
 :: 18.11.2009 | „Opið hús“ fellur niður 

Langholtsvegi 111 - 104 Reykjavík - Sími: 551 5895 - Fax: 551 5835 - Kt.: 600169-5489 - Netfang: heyrnarhjalp@heyrnarhjalp.is - Opið þriðjudag til föstudag kl 11:00 til 14:00, lokað mánudaga