![]() | ![]() |
|
Vegna sumarleyfa starfsfólks verður skrifstofa Heyrnarhjálpar – félags heyrnarskertra á Íslandi lokuð frá og með þriðjudeginum 7. júlí. Opnum aftur þriðjudaginn 4. ágúst kl 11:00 að vanda.
Eiga öryrkjar og aldraðir að greiða óreiðuskuldir? Aðalstjórn Öryrkjabandalags Íslands lýsir þungum áhyggjum yfir bágri stöðu öryrkja og ellilífeyrisþega sem þurfa að treysta á hið opinbera til að geta framfleytt sér og sínum. Fatlað fólk og eldri borgarar nutu ekki hins svokallaða góðæris þar sem uppbygging velferðarkerfisins var ekki í samræmi við velmegun í samfélaginu. Staða fyrrgreindra hópa er mjög þung vegna aukins kostnaðar á nauðsynjum, eins og mat, lyfjum, lækniskostnaði og húsnæði. Mjög margir geta ekki látið enda ná saman. >> Lesa meira
Á nýafstöðnum aðalfundi Heyrnarhjálpar var Halla B. Þorkélsson endurkjörinn formaður. Aðrir í stjórn: Daníel G. Björnsson, Fríða Birna Kristinsdóttir, Guðný Aðalsteinsdóttir og Hjördís Guðmundsdóttir. Varamenn: Bryndís Jónsdóttir og Telma Tryggvadóttir. Skoðunarmenn votu kjörnir: Grétar Snær Hjartarson og Guðjón Yngvi Stefánsson. Úr stjórn gengu: Sigurður Hallgrímsson, Unnur Berg Árnadóttir og Gísli B. Lárussonn og færði formaður þeim blóm með þakklæti fyrir samstarfið og góð störf fyrir félagið. Auk venjulegra aðalfundastarfa var fyrirtækið Tæknivörur með kynningu á símabúnaði sem hentaði heyrnarskertum og eiga þeir von á farsímum frá sænska fyrirtækinu Doro með innbyggða T-spólu.
Aðalfundur Heyrnarhjálpar – félags heyrnarskertra á Íslandi verður haldinn fimmtudaginn 28. maí 2009 kl 20:00 í félagsheimilinu að Langholtsvegi 111 Dagskrá samkvæmt 4. grein laga félagsins. >> Lesa meira
Vegna óviðráðanlegra orsaka frestast fram á haustið Opið hús sem vera átti þriðjudaginn 26. maí. Nánar auglýst síðar. Síða: Til baka 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 Næst |
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Langholtsvegi 111 - 104 Reykjavík - Sími: 551 5895 - Fax: 551 5835 - Kt.: 600169-5489 - Netfang: heyrnarhjalp@heyrnarhjalp.is - Opið þriðjudag til föstudag kl 11:00 til 14:00, lokað mánudaga |