Heyrnartæki sem framleidd eru í dag hafa mismunandi útlit og eru misstór. Þau hafa öll sömu grunnstarfsemi. Heyrnar-og talmeinastöð Íslands leitast við að hafa mikla breidd í tækjum og geta þar með mætt þörfum sem flestra. Tæki sem stöðin er með eru öll frá viðurkenndum framleiðendum sem eru leiðandi í framleiðslu heyrnartækja.