Síður
 :: Forsíða
 :: Um Heyrnarhjálp
 :: Fréttabréf
 :: Heyrnartæki
 :: Tinnitus og Ménières
 :: Heyrnarskerðing
 :: Textunarmál
 :: Umræður
 :: Tenglar

 Leita á síðunni
  

 Tinnitus og Ménières

Hér er að finna upplýsingar um eyrnasuð og Ménières-sjúkdóminn.



 Tinnitus[1]-endurþjálfunarmeðferð (TRT) byggð á taugalífeðlisfræðilegu líkani P.J. Jastreboff

Hvernig við heyrum

Meðvitund okkar um hljóð á sér stað í heilaberkinum þegar mynstur taugaboða/rafboða frá heyrnartaug berast heyrnarsvæði heilans. Heyrnartaugin samanstendur af um 30.000 mismunandi taugaþráðum sem flytja mynstur taugaboða/rafboða til heyrnarsvæðisins,  þar sem samanburður á sér stað við mynstur heyrnarminnisins.  Kuðungurinn (cochlea) í innra eyranu breytir hljóðbylgjum,  sem skella á hljóðhimnunni,  í þessi mynstruðu taugaboð/rafboð.  Þetta gerist með þeim hætti að hljóðbylgjurnar erta um 17.000 hárfrumur sem staðsettar eru í kuðungnum og þaðan berast rafboðin um heyrnartaugina til heyrnarsvæðis heilans.


>> Lesa meira

 Eyrnasuð, hvað er það?

 

Við þessari spurningu er ekki til neitt einfalt svar.  Læknavísindin hafa ekki ennþá fundið orsakirnar og ekki lækninguna.  Ákveðnar vísbendingar eru þó til staðar og ýmis úrræði hafa verið reynd með nokkrum eða verulegum árangri.

 

Eyrnasuð hefur verið skilgreint sem upplifun hljóðs.  Uppruni hljóðsins kemur þó ekki úr umhverfinu og ekki er hægt að benda á hljóðgjafann.  Hljóðið hlýtur samkvæmt þessu að eiga uppruna sinn innan líkama þess er hljóðið heyrir.  Eitthvert innra hljóð skynjast sem hávaði fyrir þennan ákveðna einstakling.


>> Lesa meira

 Daglegt líf með tinnitus.

Ágætu lesendur. Ég fagna því, að sjá loks rætt um eyrnasuð eða tinnitus á síðum dagblaða. Eins fagna ég því að halda á opna ráðstefnu um þetta vandamál, því ég er sannfærð um að mjög margir vita ekkert um þennan sjúkdóm. Ég er ein af mörgum sem þekki vandamálið af eigin raun og vil því leggja orð í belg. Ég heiti Kristín Björk Ingólfsdóttir, er 35 ára gömul og bý ásamt manninum mínum og tveimur börnum í Hrísey sem er afskaplega friðsæll og kyrrlátur staður. En ég á ekki gott með að njóta kyrrðarinnar sem hér ríkir, því ég er með tinnitus sem glymur í höfði mér allan sólarhringinn allan ársins hring.


>> Lesa meira

 Morbus Méniére................Hvað er það?

Méniéres sjúkdómurinn er mjög breytilegur sjúkdómur sem einkennist af kröftugum svimaköstum, eyrnasuði, heyrnarskerðingu og oft hljóðbrenglun.  Sjúkdómurinn er mjög einstaklingsbundinn og birtist í ólíkum myndum hjá hverjum einstaklingi. Sjúkdómurinn er ýmist bundinn við annað eyrað eða bæði.  Sjúkdómurinn er fremur sjaldgæfur.


>> Lesa meira

Langholtsvegi 111 - 104 Reykjavík - Sími: 551 5895 - Fax: 551 5835 - Kt.: 600169-5489 - Netfang: heyrnarhjalp@heyrnarhjalp.is - Opið þriðjudag til föstudag kl 11:00 til 14:00, lokað mánudaga