Um Heyrnarhjálp

  • Heyrnarhjálp – félag heyrnarskertra á Íslandi
  • Heyrnarhjalp – Islands forbund for hørselshemmede
  • Heyrnarhjalp – Icelandic Association of the Hard of Hearing

Texti er okkar tromp

Heyrnarhjálp er landssamtök þeirra sem eru heyrnarskertir, hafa misst heyrn að hluta eða alveg, þeirra er þjást af eyrnasuði og öðrum vandamálum er snúa að heyrn. Að félaginu koma líka aðstandendur og aðrir áhugamenn um málefni heyrnaskertra.

Félagið var stofnað 14. nóvember árið 1937.

Heyrnarhjálp rekur þjónustuskrifstofu að Ármúla 4-6, 108 Reykjavík.
Skrifstofan er opin á mánudögum frá kl. 13:00-15:00 og við biðjum félagsmenn um að hringja vinsamlegast á undan sér þar sem húsið er almennt séð læst. 

Nokkur af markmiðum Heyrnarhjálpar:

  • að gæta hagsmuna félagsmanna
  • að efla skilning innan félagsins og utan á heyrnarfötlun
  • að hvetja til heyrnarverndar
  • að fylgjast með framförum og nýjungum, efla notkun hjálparbúnaðar …og þar með að bæta aðgengi heyrnarskertra að samfélaginu
  • að viða að okkur fræðsluefni er tengist heyrnarfötlun
  • að gefa út Fréttabréf með fræðslu og kynnigarefni
  • að gefa út bæklinga af ýmsu tagi