Í dag er alþjóðlegur dagur heyrnar og af því tilefni hefur verið ákveðið að leggja áherslu á heyrnarskimun fyrir öll börn.
Um heim allan má finna börn á grunnskólaaldri með heyrnarskerðingu sem oftar en ekki er ógreind eða ómeðhöndluð. Samkvæmt WHO Alþjóða heilbrigðismálastofnuninni hefur heyrnarskerðing áhrif á líf rétt um 90 milljóna bara á aldrinum 5-19 ára. Þrátt fyrir það er heyrnarskerðing oftar en ekki uppgötvuð fyrr en langt er liðið á skólagönguna eða henni lokið með óafturkræfum áhrifum á námsárangur og líðan barnanna.
Því miður er það svo að varanlegur alvarlegur heyrnarskaði getur hlotist ef ekki er brugðist við litlum vanda og heyrnarheilsu barna sinnt af ábyrgð.