Myndbönd
Um heyrnarskerðingu
Þeim mun meira sem þú hlustar á hávær hljóð, því líklegri ertu til að skerða heyrn þína. Hávaði er til staðar á mörgum stöðum í umhverfinu í nútíma þjóðfélagi. Flestum líkar ekki hávær hljóð eða mikill hávaði. Eyru okkar eru viðkvæm og mikill hávaði getur skemmt heyrn okkar.
Greiðsluþátttaka og styrkir
Sjúkratryggingar Íslands greiða styrki vegna kaupa á heyrnartækjum. Styrkur er veittur á fjögurra ára fresti. Það þarf ekki að fylla út sérstakt eyðublað til að sækja um styrk vegna kaupa á heyrnartækjum heldur er nóg að skila inn frumriti reiknings, heyrnarmælingu og upplýsingum um bankareikning.
Myndbönd
Hér fyrir neðan eru nokkur kynningarmyndbönd þar sem fólk með heyrnarskerðingu segir frá sinni upplifun og lífi
Tímabundin heyrnarskerðing
Tímabundin heyrnarskerðing einkennist heyrnardeyfu sem varir í stuttan tíma eftir að hafa verið útsettur fyrir miklum hávaða. Heyrnin fer fljótt í fyrra horf – háð því hversu mikill hávaðinn var og hve lengi viðkomandi var í þessum aðstæðum.
Varanleg heyrnarskerðing
Varanleg heyrnarskerðing kemur fram um 48 klst. eftir að viðkomandi hefur verið í mjög miklum hávaða. Varanleg heyrnarskerðing getur líka komið fram eftir að viðkomandi hefur í nokkur skipti verið útsettur fyrir miklum hávaða í langan tíma. Það getur líka orsakast af mjög miklum hávaða í stuttan tíma. Þessi tegund heyrnarskerðingar heldur áfram að aukast í allt að fimm ár eftir að viðkomandi var útsettur fyrir hávaðanum.