Alþjóðlegur dagur heyrnar 3. mars

Í dag er alþjóðlegur dagur heyrnar og af því tilefni hefur verið ákveðið að leggja áherslu á heyrnarskimun fyrir öll börn.

Um heim allan má finna börn á grunnskólaaldri með heyrnarskerðingu sem oftar en ekki er ógreind eða ómeðhöndluð. Samkvæmt WHO Alþjóða heilbrigðismálastofnuninni hefur heyrnarskerðing áhrif á líf rétt um 90 milljóna bara á aldrinum 5-19 ára. Þrátt fyrir það er heyrnarskerðing oftar en ekki uppgötvuð fyrr en langt er liðið á skólagönguna eða henni lokið með óafturkræfum áhrifum á námsárangur og líðan barnanna. 

Því miður er það svo að varanlegur alvarlegur heyrnarskaði getur hlotist ef ekki er brugðist við litlum vanda og heyrnarheilsu barna sinnt af ábyrgð. 

Scroll to Top