Fréttir

Formaður Heyrnarhjálpar fremst í flokki á ársfundi Norrænu Samstarfsnefndarinnar um málefni Heyrnarskertra

Formaður Heyrnarhjálpar sótti nýlega ársfund Norrænu samstarfsnefndarinnar um málefni heyrnarskertra (Nordiska Hörselskadades Samarbetskommitté, NHS) í Osló. Samstarfið gerir norrænu félögunum kleift að miðla þekkingu og upplýsingum og byggja upp mikilvægt tengslanet. Í ár var sjónum beint að stöðu heyrnarskertra á vinnumarkaði, meðal annars viðhorfum til heyrnarskerðingar, móttöku starfsfólks og inngildingu. Einnig var heimsóttur skóli fyrir heyrnarskert börn í Briskeby og hlýtt á erindi um rannsóknir á heyrnarskerðingu í atvinnulífinu.

Scroll to Top