Við hvetjum alla velunnara félagsins til að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu og heita á Heyrnarhjálp í leiðinni!

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka

Fréttir & greinar

  • Sýna allt
  • Aðalfundargerðir
  • Fréttir
  • Fundargerðir stjórnar
  • Ýmislegt


Sumarfrí

3 júlí, 2023
Ýmislegt

Skrifstofa Heyrnarhjálpar verður lokuð vegna sumarfría frá og með 10 Júlí. Opnum aftur 14 Ágúst og félagsmenn eru velkomnir á skrifstofuna án tímapöntunar.  Eigið ánægjulegt sumar!


Lesa meira →


Grafalvarleg staða í aðgengi heyrnarskertra

26 júní, 2023
Fréttir

Heyrnarhjálp félag heyrnarskertra á Íslandi lýsir yfir þungum áhyggjum yfir stöðu barna og fullorðinna á heyrnarmælingu og heyrnartækjum en nærri tveggja ára bið eftir þjónustu hjá Heyrnar og talmennastöð Íslands og ljóst að úrlausna er þörf.  Heyrnarskert börn eru að bíða svo mánuðum skiptir og sem og fólk með mjög alvarlega heyrnarskerðinu.   Ómeðhöndluð heyrnarskerðing er þungbær og gríðarlega kosnaðarsöm fyrir samfélagið í heild sinni sé ekkert að gert og veldur einstakingum mikla skerðingu á lífsgæðum.  Heyrnarskerðing  getur valdið atvinnumissi, félagslegri einangun, heilsubrestum af margvíslegum toga bæði líkamlegum og andlegum meinum og er stór fatktor í lýðheilsu. Því  skiptir mikilu að sýna fyrirhyggju til lengri tíma …


Lesa meira →


Samtal við ráðherra: Landsáætlun í málefnum fatlaðst fólks

23 júní, 2023
Fréttir

Heyrnarhjálp vill vekja athygli á eftirfarandi fundarherferð félagsmálaráðherra og hvetur félagsmenn sína til að taka þátta.  Ljóst er að staðan í málefnum heyrnarskertra er grafalvarleg og hefur aðgengi að þjónustu versnað hin síðari ár. Ekkert um okkur án okkar! Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, býður þessar vikurnar til opinna samráðsfunda um landið. Fundurinn á höfuðborgarsvæðinu fer fram 27. júní á Grand hótel. Á fundunum er fjallað um helstu áherslur í þjónustu við fatlað fólk í nútíð og framtíð og hvernig staðið verður að innleiðingu þeirra. Samráðsfundirnir hafa þann tilgang að tryggja milliliðalaust samtal um það sem fólki er efst …


Lesa meira →


Aðalfundur Heyrnarhjálpar, stjórnarkjör!

14 júní, 2023
Fréttir

Á aðalfundir Heyrnarhjálpar þann 24 maí síðast liðin var kosið um stjórn eins og lög félagsins gera ráð fyrir.  Halla B. Þorkelsson var kjörin formaður félagins. Í aðalstjórn voru kjörin Bergþóra Kristín Benediktsdóttir, Ingólfur Már Magnússon, Kristín Margrét Bjarnadóttir og Stefán Benediktsson. Í varastjórn voru kjörin Sigrún Magnúsdóttir og Telma Sigtryggsdóttir. Á stjórnarfundi þann 5 júní kaus stjórn Bergþóru Kristínu Benediktsdóttur sem varaformann, Kristínu Margréti Bjarnadóttur sem gjaldkera félagsins.


Lesa meira →


Fræðsla um kuðungsígræðslu

22 maí, 2023
Fréttir

Ingibjörg Hinriksdóttir yfirlæknir HTÍ flytur fræðslu erindi um kuðungsígræðslu á mikiðvikudagins kvöldið 24 maí n.k að loknum aðalfundarstörfum Heyrnarhjálpar. Hvað er kuðungsígræðsla? – Hverjir eru kandidatar í kuðungsígræðslu – Hvers má vænta eftir ígræðsluna og hver er þróunin ?   Allir velkomin!


Lesa meira →


Aðalfundur Heyrnarhjálpar

15 maí, 2023
Fréttir

Kjör tveggja varamanna í stjórn. Önnur mál. Boðið verður uppá veitingar, verið velkomin!


Lesa meira →


Skrifstofa Heynarhjálpar í Sigtúni 42

13 mars, 2023
Fréttir

Skrifstofa heyrnarhjálpar í Sigtúni 42 er opin alla  mánudaga frá 13:00-15:00. Ekki er þörf á tímabókun. Símanúmer félagsins er eins og áður 5515895. Verið velkomin!


Lesa meira →


Alþjóðlegur dagur heyrnar 3 mars.

3 mars, 2023
Fréttir

Heyrnin er okkur öllum mikilvæg í daglegu líf og fæstir þeirra sem fullheyrandi eru leiða hugann af lífi með skertri heyrn, samt er það svo að samkvæmt tölum frá WHO má reikna með að um 20% Íslendinga glími við heyrnarmein af einum eða öðrum toga. Spár WHO gera því miður ráð fyrir 10% aukningu á næstu 13 árum. Heyrnarskerðing er mögulega algengasta falda fötlunin og kostar, ef hún er ómeðhöndluð gríðarlega fjármuni fyrir samfélagið og einstaklinginn sjálfan   Ísland hefur dregist aftur úr í málefnum heyrnarskertra síðustu áratugina. Áætlað er að kostnaður í Evrópu vegna ómeðhöndlaðrar heyrnarskerðinga sé 213 milljarðar evra …


Lesa meira →


Skrifstofa Heyrnarhjálpar er opin á mánudögum frá 13:00-15:00

20 febrúar, 2023
Fréttir

Við hjá Heyrnarhjálp erum að koma okkur fyrir í nýju skrifstofurými í Sigtúni 42. Sama símanúmer 5515895 Verið velkomin!


Lesa meira →


Stólajóga fellur niður í dag

16 febrúar, 2023
Fréttir

Okkur þykir það leitt en stólajóga fellur niður í dag, vegna veikdinda. Hittumst hress eftir 2 vikur.


Lesa meira →


Stólajógað snýr aftur!

27 janúar, 2023
Fréttir

Vegna mikilla vinsælda var ákveðið að halda annað námskeið í stólajóga fyrir heyrnarskerta og þá sem glíma við eyrnasuð! Námskeiðið hefst: Fimmtudaginn 9. febrúar kl. 13:30. Lengd: Óákveðið, stefnt á að það sé fram að vori. Hvar: Hátúni 10. Verð: Frítt fyrir félagsmenn, 5000 kr. fyrir aðra. Skráning fer fram í gegnum: https://hringsja.is/skraningjoga/ Við hvetjum alla til að skrá sig og njóta þeirra vellíðan sem iðkunin stuðlar að!


Lesa meira →


Nýárskveðjur

30 desember, 2022
Ýmislegt

Minnum ykkur öll á að passa vel uppá heyrnina og nota heyrnarhlífa bæði fullorðnir og börn á gamlárskvöld og eða eyrnatappa, látum ekki stundagleði eyðilegga heyrnina. Heyrnarhjálp óskar félögum og velunnurum sínum árs og friðar með kærum þökkum fyrir líðið ár og megi 2023 vera okkur öllum gott!


Lesa meira →

Scroll to Top